Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Blaðsíða 20
258
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
úr því varð ekki, og mun varla hafa verið reynt, hvernig sem á því
kann að hafa staðið.
Nefndin sem kosin var fór nú til Kaupmannahafnar í janúar þ. á.
og var rúma tvo mánuði í burtu. Enginn árangur varð af þessari
ferð annar en sá, að danska stjórnin lagði fram tillögur sínar í
stjórnskipunarmálinu. Meginatriði þeirra var það, að hin gamla
ríkisréttarstaða Færeyja (amtsstaðan) skyldi haldast, Færeyjar
skyldu vera hluti hins danska ríkis, en hafa takmarkaða sjálfstjórn
í ýmsum smærri málum. Jafnframt lýsti danska stjórnin því yfir,
að ef Færeyingar vildu pólitískan skilnað Færeyja og Danmerkur og
fullt sjálfstæði Færeyingum til handa (þ. e. stofnun færeysks ríkis),
mundi hún veita þessum óskum fullt samþykki.
í þessari mynd kom stjórnskipunarmálið aftur fyrir Lögþingið
og var þar til umræðu í apríl og maí þ. á. Lögþinginu tókst þó ekki
að afgreiða málið í þetta sinn fremur en haustinu áður. Ekkert
stjórnskipunarfrumvarp var samþykkt nú frekar en fyrr. Allir flokk-
ar lögðu nú fram frumvörp að grundvelli nýrra samninga við
dönsku stjórnina. Frumvörp Jafnaðarmanna og Sambandsmanna
fóru mjög nærri tillögum dönsku stjórnarinnar, en frumvarp Fólka-
flokksins var miklu róttækara.
011 frumvörpin voru felld. Lögþingið var ekki fært um að afgreiða
stj órnskipunarmálið.
En eitthvað varð að gera. í fyrrasumar hafði Sambandsflokkur-
inn þegar rætt um þjóðaratkvæði, og í Kaupmannahöfn höfðu Danir
haft það við orð — þó helzt sem síðasta þátt í afgreiðslu málsins.
Þessa leið kaus nú Lögþingið — þegar í stað. Um þetta voru allir
flokkar sammála, en um fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar urðu
þeir ekki á eitt sáttir. Fólkaflokkurinn vildi láta leggja fjórar spurn-
ingar fyrir kjósendur: 1) Viljið þér að stjórnskipun Færeyja fram-
vegis sé nær ástandinu fyrir 9. apríl 1940 en í danska stjórnskip-
unarfrumvarpinu? 2) Viljið þér að danska stjórnskipunarfrumvarp-
ið öðlist gildi? 3) Viljið þér að stjórnskipun Færeyja framvegis sé
frjálsari en í danska stjórnskipunarfrumvarpinu? 4) Viljið þér
skilnað Færeyja og Danmerkur? — Sambandsmenn og Jafnaðar-
menn vildu hins vegar aðeins láta greiða atkvæði um 2. og 4. spurn-