Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Blaðsíða 47
LÝÐRÆÐI
285
ræði eru tveir hlutir óaðskiljanlegir, með því að hugtakið sósíal-
ismi felur beinlínis í sér hugtakið lýðræði, — raunverulegt lýðræði,
sósíalískt lýðræði. Þegar sumir menn ímynda sér, að sósíalismi sé
eingöngu hagfræðilegt hugtak nokkurn veginn óháð pólitískum,
félagslegum og menningarlegum háttum þjóðfélagsins, þegar þessir
menn gera sér í hugarlund, að samfara þessu svokallaða sósíalíska
hagkerfi geti þróazt einræðisstjornarfar, ef svo vilji verkast, eigi
síður en lýðræðisskipulag, þá opinbera þeir einungis þau sannindi,
að þeir hafa aldrei botnað neitt í hugtökunum lýðræði og sósíal-
ismi. Hið lýðræðislega hagkerfi sósíalismans hlýtur að sjálfsögðu
að þróa með sér lýðræðislega þjóðfélagsháttu í pólitískum, félags-
legum og menningarlegum efnum, með því að hvers konar alræðis-
eða einræðisskipulag í þeim efnum á sér að síðustu efnahagslegar
rætur, og eins er augljóst, að raunverulegt pólitískt, félagslegt og
menningarlegt lýðræði getur ekki svifið í lausu lofti án efnahagslegs
lýðræðisgrundvallar, það er án fullkomins sósíalísks hagkerfis. Hug-
lakið einræðislegur sósíalismi er jafnmikil fjarstæða sem lýðræðis-
legt auðvaldsskipulag, ef menn meina yfirleitt eitthvað raunveru-
legt með lýðræðishugtakinu. Sú staðreynd, að ekki er ennþá komið á
fyllsta lýðræðisskipulag í Ráðstjórnarríkjunum (þó að þar ríki að
vísu margfalt meira lýðræði en í nokkru auðvaldslandi) afsannar
ekki þetta, heldur er hún einungis vitnisburður um þau eðlilegu
sannindi, að sósíalisminn er þar ekki heldur fullþroskaður, enn sem
komið er.
-K
Fyrr í þessari ritgerð hefur flokkakreddan verið tekin til nokk-
urrar athugunar, það er sú ímyndun, að inntak raunverulegs lýð-
ræðis sé tilvist andstæðra stjórnmálaflokka, er berjist um völdin
með öllum þeim tækjum, sem mönnum eru kunn úr pólitískri bar-
áttu borgaralýðræðisríkjanna, — ósannindum, fölsunum, blekk-
ingum og öðrum vopnum hins andlega ofbeldis. Gerð var grein
fyrir þeim sannindum, að því fer svo fjarri, að slík flokkabarátta
sé inntak hins sanna lýðræðis, að raunverulegt lýðræði er bein-
línis óhugsandi, á meðan hún á sér stað. Sú kenning, að flokka-
baráttan, svo sem hún er háð á vettvangi borgaralýðræðisins, sé