Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Blaðsíða 36
274
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
vísu engin nýjung, að yfirstétt selji landsréttindi þjóðar sinnar fyrir
stéttarforréttindi sjálfrar sín. En „þér finnst þá, ef til vill, þeim fari
það verr um frelsið svo hjartnæmt að tala“. Eða þá liitt, er þeir lýsa
svo fjálglega sinni óviðjafnanlegu lýðræðisást. Og sést hér ekki sí-
gilt dæmi um þá hryllilegu viðurstyggð hræsninnar, sem einkennir
meginhlutann af þessu eilífa lýðræðisskrumi hinna borgaralegu
stjórnmálaflokka og málgagna þeirra?
Annar ávöxtur af þessum ósanninda-, hræðslu- og hatursáróðri
borgaralýðræðisflokkanna er sú hugarfarsspilling, sem nú er að
verða ískyggilegt tímanna tákn, ekki sízt hér á landi. Hver kannast
ekki við hugarfar hinnar fínu Reykjavíkurfrúar, sem sagði, að það
ætti að taka alla kommúnista og steikja yfir hægum eldi, eða hins
góða borgara, sem kvað rétt að drepa alla Rússa með kjarnorku-
sprengjum?
Frúin og borgarinn eru pólitísk afkvæmi Morgunhlaðsins, Vísis,
Tírnans og Alþýðublaðsins, og hið athyglisverða er, að þau reynast
nákvæmlega sama sinnis og það fólk, sem lyfti Hitler í valdastólinn.
Pólitískt viðurværi frúarinnar og borgarans hefur árum saman verið
mestmegnis kommúnistahatur og Rússlandsníð, einmitt það sem
Göbbels ráðherra miðlaði sínu fólki, þá hann lifði. Og hið ísjár-
verða er það, að frúin og borgarinn eru engin eins dæmi. Þau eru
fulltrúar fyrir býsna fjölmennan hóp lítilsigldra og yfirleitt fremur
fátæklega gefinna sálna, sem skortir bæði gagnrýni og siðferðis-
gáfu til að sjá við slíkum áróðri. Hræðslan og hatrið, sem verið er
að rækta í hugum þessa fólks, birtist á vissu stigi í mynd frum-
stæðrar grimmdar í ætt við blóð og mold af þeirri tegund, sem
orðið hefur afleiðing fasistastefnunnar til dæmis í Þýzkalandi og
á Spáni, og þessi hugarfarsfasismi getur, hvenær sem ræktendum
hans þykir tímabært, breytzt í fasisma athafnarinnar, þar sem menn
eru steiktir á eldi í raun og veru og sprengjum varpað yfir höfuð
þeirra.
*
í sérstaklega afkáralegri og þó ískyggilegri mynd hafa þessir
ávextir hins vestræna borgaralýðræðis birzt hér á landi að undan-
förnu, þar sem er „utanríkismálastefna“ íslenzkrar auðborgarastétt-
ar túlkuð og fram borin einum rómi af öllum hennar málgögnum,