Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Side 50
288
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
lista- og vísindafélög og hvers konar samtök önnur til eflingar and-
legri og félagslegri menningu. Stjórnmálastarfsemi þessara sam-
taka verður alls ólík hinni borgaralýðræðislegu flokkabaráttu, og
þar sem þau eru ekki fulltrúar neins konar sérhagsmunastétta, verð-
ur alls ekki um að ræða neina hagsmunastreitu þeirra í millum.
Stjórnmálaofbeldið í sínum ýmislegu myndum mun hverfa úr sög-
unni ásamt þeirri viðbjóðslegu haturs-, rógs- og lygatækni, sem ein-
kennir alla starfsemi hinna borgaralegu stjórnmálaflokka. Engin
þessara samtaka munu telja sér áhugamál að spilla fyrir hinum,
gera þau tortryggileg eða falsa tilgang þeirra, því að markmið þeirra
allra er einmitt eitt og hið sama, bættur hagur og vaxandi menning
alþjóðar. Um það verður því síður að ræða, að þessi samtök reyni
hver um sig að hrifsa til sín völdin. Slíkt er ekki tilgangur þeirra.
Að vísu hafa lil dæmis þau samtök, sem bjóða fram menn til þings,
ýmiss konar sértilgang eftir eðli sínu og uppruna, en þessi mismun-
andi sértilgangur er jafnan undirorpinn sameiginlegum megintil-
gangi og honum fullkomlega samrímanlegur. Þessi samtök líta því
hver á önnur sem bróðurlega samherja, en ekki pólitíska andstæð-
inga, og þau geta til dæmis gengið til kosningabandalags, í stað
þess að hver keppi við önnur og oti sínum tota. Engin þeirra munu
hafa hag af eða hug á að blekkja almenning eða rugla hugmyndir
hans um þjóðfélagsmál, stjórnmál eða önnur efni. Þeim hlyti ein-
mitt öllum að vera það hagsmuna- og áhugamál, að allur almenn-
ingur væri sem bezt að sér í félagslegu og pólitísku tilliti. Hið lýð-
ræðislega takmark kommúnismans er einmitt það, eins og Lenín
komst að orði, að sérhver þjónustustúlka megi verða fær um að
stjórna ríkinu. Þannig orðaði Lenín hugsjón hins sósíalíska alls-
herjarlýðræðis, sem taka mun við af yfirstéttarlýðræði auðvalds-
þjóðfélagsins.
-k
Með afnámi auðvaldsskipulagsins er grunninúm kippt undan
heimsvaldastefnu, hernaðaranda, þjóðernishroka og kynþáttahatri
ásamt öllu því margþætta hugmyndakerfi, sem á þessum höfuðstoð-
um hvílir, tekið fyrir uppsprettu auðsöfnunargirndarinnar, þessarar
undirrótar flestallra félagslegra ódyggða, og afmáð skilyrði óhófs
og örbirgðar ásamt allri þeirri siðspillingu, er upp úr þeim jarðvegi