Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Page 63
KAJ MUNK 301 fannst þeir eiga heimtingu á. Um eitt atriði voru þeir að minnsta kosti sammála: þeim þótti báðum gaman að því að segja það, sem þeim var í hug, á eftirminnilegan hátt, þannig að það vekti athygli, kæmi flatt upp á fólk, og það skipti þá minna máli, þó að orðbragð- ið færi út fyrir takmörk almenns velsæmis. Brix prófessor hughreysti unga prestinn og hvatti hann til að nota biðina til þess að semja nýtt leikrit um danska bændur. Það var eins og fargi væri létt af Kaj Munk, og hann snaraðist heim til Vedersö, samdi á vikutíma leikrit sitt um kraftaverkið (,,Orðið“) og sendi það umsvifalaust prófessornum. En biðin varð drjúgum lengri. í lok júlímánaðar 1926 kom loks svar frá Konunglega leikhúsinu þess efnis, að leikritið „En Idea- list“ yrði tekið til sýningar. Undir eins að kvöldi sama dags fór Kaj Munk heim til fósturforeldra sinna á Lálandi til þess að segja þeim þessi stórtíðindi. Plómutrén í aldingarðinum heima þora varla að taka kátri kveðju hans og að kalla hann Kaj eins og forðum, en gullregninu stendur algerlega á sama, og það lækkar í honum rost- ann, svo að hann getur gengið í bæinn og sýnt fósturforeldrum sínum bréfið með fyrirheitinu langþráða, þar sem sjálft Konung- lega leikhúsið tekur við leikriti hans. Hér lýkur Kaj Munk endurminningum sínum. Þegar bókin kom út, þekktu allir, sem eitthvað komu nærri bókmenntum, æviferil hans og viðgang í leikkritaskáldskap. Síðar hefur Hans Brix pró- fessor lýst skáldskaparferli hans í bók, sem nýlega er komin út: „Hurtigt svandt den lyse Sommer!“ Titillinn er tekinn úr kvæði eftir Kaj Munk og valinn í samræmi við heiti endurminninga hans. Bókin hefur þó ekki tekizt sem skyldi. Brix hafði upphaflega ætlað sér að gefa út með athugasemdum öll hin mörgu bréf, sem honum og skáldinu höfðu farið á milli, en ekkja skáldsins bannaði útgáfu bréfanna, svo að Brix varð að láta sér nægja að skýra frá efni þeirra. Stíl Kaj Munks er haldið að mestu, en oft er erfitt að sjá, hvort skáldið eða prófessorinn er að tala. Bókin verður þó alltaf nytsamt heimildarrit fræðimönnum, sem rannsaka vilja rit Kaj Munks. Brix hefur gert sér ljóst, að ævi Kaj Munks var drama, en honum hefur ekki tekizt til fulls að setja þetta drama á svið, eins

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.