Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 9
VANDAMÁL SKÁLDSKAPAR Á VORUM DÖGUM 119' ur munu þaraðauki vera komnir með leiðinlega geislavirka sjúkdóma sem gera þá að miður aðlaðandi áheyrendum sagnamanns. Það er því ekki alveg út í bláinn, ef gert er ráð fyrir að mér væri þökk á að deilan milli austurs og vesturs yrði sett niður, svo ég mætti halda hinum prúða lesendahóp mínum bæði hér í Osló og víða annars- staðar í borgum, þessu fólki sem ræðir bækur mínar af ánægju og skiln- íngi og slær mér gullhamra, og tekur meira að segja stundum upp budd- una til að kaupa þær. Ætlun mín var sú að ræða hér nokkur vandamál skáldskapar nú á dögum, í fyrsta lagi sem vesturlandabúi og í öðru lagi sem íslenskur rithöfundur, og þannig hafði ég hugsað mér að binda mig við menníng- arleg efni, — en það er hverju orði sannara, og af þeirri forsendu er sér- hver ályktun bundin nú á dögum: fyrir öllu öðru geingur sú skylda að grafa undan stríðinu, — ef ég mætti leyfa mér að komast svo ankanna- lega að orði. 011 ræðuhöld um skáldskap, list og menníngu eru blátt áfram hlægileg ef vér bregðumst þeirri mensku frumskyldu, að gera alt sem í voru valdi stendur til að spilla fyrir þeim sem eru að basla við að koma á stað heimsbrennu. Aðeins eitt getur gefið umræðum vorum um menníngu einhverja merkíngu, og það er friður. Það er líka hverju orði sannara: vér verðum að berjast atalt fyrir málstað friðarins, og fyrir því að mannkynið lifi af, því þeir valdhafar sem berjast fyrir málstað stríðsins og útrýmíngu mannkynsins eru öflugir, og þeir liggja sannar- lega ekki á liði sínu. Og þegar listamaður eða skáld stendur andspænis veruleik vorra tíma, þá er það ekki í fyrsta lagi vandamál skáldskapar- ins, spurníngar um form og efni, eða um víxlverkanir skáldskapar og raunveruleika, sem alt er undir komið, heldur framar öllu öðru spurn- íngin um áframhaldslíf mannkynsins hér á jörðu — já eða nei; spurn- íngin um að vera eða vera ekki, í fylstu merkíngu þess orðs. Ef lagt væri fyrir mig að svara því berum orðum, hver væri skoðun mín á deilunni milli austurs og vesturs, eða hvort ég hyggi að hægt sé að setja hana niður eða ekki, þá mundi mér vefjast túnga um tönn. Þá valdamenn ber nú hátt, sem ýmist sjálfir, eða studdir af köllurum, eru óþreytanlegir að reka upp rokur um austur-vesturdeilu; og það er jafn- víst að bak þessu orðatiltæki, austur-vesturdeilunni, leynist örlögþrúng- inn veruleiki þó ekki sé skilgreindur í sjálfu orðatiltækinu. Vér höfum lifað að sjá sterk öfl. risin úr geðbilun stjórnmálamanna, og fullkom-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.