Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 10
120 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR lega siðblind, heya örvæntíngarþrúngna baráttu fyrir útrýmíngu mann- kynsins. En ég efast um að alsherjarandstæður sem slík öfl mynda eigi heima á áttavitanum. Að minstakosti hef ég litla trú á því að „austur“ og „vestur“ eigi þar hlut að máli. Eftir blöðum og útvarpi að dæma virð- ist austur-vestur-deilan, sem svo er nefnd, næstum einvörðúngu bundin nafni örfárra stjórnmálamanna. Almenníngur, hvort heldur í austri eða vestri, kemur þar elcki við sögu öðruvísi en til að semja ályktanir, ávörp, skírskotanir og bænarskrár til þessara stjórnmálamanna um að binda enda á pex og rifrildi og hætta við fyrirætlanir sínar um útrýmíngu á íbúum jarðarinnar. Ef marka má fréttir þær sem fluttar eru í blöðum og útvarpi virðist deila þessi háð milli fáeinna stjórnmálamanna að öðru leytinu og almúgafólks heimsins að hinu leytinu. Ég vil taka það fram að ég hef aldrei á ævi minni kynst raunveru- legum stjórnmálamanni þó ég hafi ekki komist hjá að taka eftir hvernig margir þeirra haga sér á opinberum vettvángi og í dagblöðunum; og er það að vísu ófögur sjón. Hinsvegar þekki ég fjöldann allan af almúga- fólki víða í löndum; og það vill svo vel til að mér hefur orðið álíka vel til vina meðal venjulegs fólks báðumegin við hinn ímyndaða skilvegg milli austurs og vesturs, sem kallaður er járntjald. Og þannig veit ég af reynslu að venjulegum mönnum báðumegin þessa skilveggs finst ekki að þeir eigi í neinni deilu hvorir við aðra, né milli þeirra sé neitt ástand ríkjandi, líklegt til að valda óvináttu. Einginn efast um að það sé óska- draumur sumra stjórnmálamanna að siga saman þjóðum í austri og vestri til manndrápa, en það er mjög óraunsæ fullyrðíng að deila sé uppi með alþýðu eystra og vestra. Ég á víða leið, bæði í austri og vestri, og á þess kost að hitta fólk úr ólíkum atvinnustéttum í mörgum löndum. Ég kem á meðal verkamanna og bænda, búðarmanna og kontórista, ég kem einnig á meðal háskóla- borgara, listamanna og annarra mentamanna. Ég kann eins vel við mig eystra og vestra, og persónulega er mér ekki kunnugt um neitt járntjald. Mætti ég vitna í rithöfundana starfsbræður mína sem dæmi, — venju- lega hitti ég þá fyrsta manna þegar ég kem í nýtt land. Það eru náttúrlega skiftar skoðanir meðal rithöfunda um alt sem heiti hefur; einatt rísa úf- ar með mönnum innan rithöfundafélags, eða milli tveggja rithöfundafé- laga í sama landi, eða sitt í hvoru landi. En ég hef ekki enn orðið fvrir þeirri reynslu að hitta tvo rithöfunda sem lángaði til að drepa hvor ann-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.