Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 18

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 18
128 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR urt svar íólgið við raunverulegri kröíu og brýnni þörf þeirrar aldar er þær urðu til. Það sem Ijær þessum mannlýsíngum sannblæ, gerir þær raunverulegar, er hvorki náttúrustefna, skynsemisstefna né ljósmynda- tækni inyndgerðarinnar, heldur sú staðreynd að með íslendíngum hefur verið nauðsyn slíkrar persónusköpunar. Og hvernig vitum vér það? Vér hljótum að draga slíka ályktun, í fyrsta lagi sökum þeirrar umhyggju sem meistarar og höfuðspekíngar hafa borið fyrir íslenskum vandamál- uin þegar þeir fundu þeim stað í slikum óviðjafnanlegum bókum og íklæddu þau þessum ógleymanlegum myndum; og í öðru lagi af því að þessi útsmogni skáldskapur um sérkennilegar manngerðir og atburði skuli hafa verið þeginn af slíkum þökkum sem raun ber vitni, bæði af samtíðinni og svo þeim tímá sem á eftir kom. Ég ímynda mér að manni úr Noregi sé óhægt að benda á raunhæfari bók en sögu Snorra Sturlu- sonar af Ólafi hinum helga; þetta íslenska skáldverk, sem og aðrar þær sögur er Heimskrínglubálkurinn samanstendur af, hefur að dómi nor- rænna sagnfræðínga átt flestum bókum meiri þátt í því að efla andlega reisíngu með noregsmönnum, enda talin ein sterkust forsenda þjóðernis- vakníngar þeirra og endurreisnar. Vér höfum einsog ég sagði einga ástæðu til að ætla að nokkru sinni hafi á íslandi eða annarsstaðar í réttri raun svo stoltir tignarmenn lifað, eða hetjur, einsog þær manngerðir sem lýst er í bókmentum vorum á 13. og 14. öld. Öðru nær, þessi persónusköpun varð til í skáldskap á hnign- unartíma í sögu íslensku þjóðarinnar, tímabili þegar íslendíngar voru sannarlega aungvir tignarmenn eða hetjur, heldur höfðu beygt höfuð sín fyrir útlendu valdi og gefið upp bæði hetjuskap og tign; siðferði þjóðar- innar var lamað, höfðíngjar hennar keptust við, hver sem betur gat, að svíkja þjóðlega einíngu hvar sem þeir gátu við komið; ef álykta skal af sagnfræðilegum heimildum voru íslendíngar á þessu blómaskeiði sí- gildra bókmenta vorra nær því að þola siðferðilegt niðurbrot. A tímabili þegar svo mörg þjóðleg verðmæti voru að glatast eru sagnhetjurnar, ásamt hinum rismiklu atburðum sem Íslendíngasögurnar lýsa, mikil- menskudraumur lítillækkaðrar þjóðar; en bæði á öldinni sjálfri, og ekki síður þeim tímum sem á eftir komu, urðu hetjur þessar að hugsjón, að sniði og fyrirmynd íslenskrar skapgerðar; og þessi fyrirmynd hefur ver- ið í gildi hjá öllum íslenskum körlum og konum öld frammaf öld síðan; trúin á siðferðilega yfirburði þessara mannamynda varð allri trú ann-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.