Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 35
KRISTJÁN BENDER:
Forspá
Um morguninn, þegar hann kom í vinnuna, sat veiöibjallan úti í
horni og hamraði á ritvélina sína. Strax fyrsta daginn hafði hann gefið
henni þetta nafn. Af hverju? -— Það vissi hann ekki. Kannski vegna
hvítu nælonblússunnar og svarta, brydda jakkans? Kannski vegna þess,
að augu hennar voru snör og gljáandi eins og í fugli?
Ef vil vill hefur þetta verið hugboð, snöggt, framsýnt leiftur, sem eitt
andartak lýsti upp svið vitundarinnar, þegar þessir tveir rafmögnuðu
pólar nálguðust. Stundum er skynjunin eins og hilling, sem lyftir ókomn-
um atburðum upp í sjóndeildarhring hugans, og þá gerist þetta óskilj-
anlega, sem almennt er nefnt hugboð eða forspá.
Auðvitað hugsaði hann ekki þannig, því hann var aðeins á fimmtánda
ári, þegar hann byrjaði þarna í heildsölunni; það var réttri viku eftir
að hann fermdist.
— Góðan daginn, sagði hann og hneigði sig klaufalega að horni veiði-
bjöllunnar. Hún tók ekki undir, jók aðeins fingrafimina svo small í
þykkum póstkröfupappírnum líkt og vélbyssuskothríð.
Þrátt fyrir þetta undarlega kerskna nafn, bar hann óblandna virð-
ingu fyrir henni, dáði kunnáttu hennar og leikni, bar djúpa lotningu
fyrir framkomu hennar, sem honum fannst standa öllu ofar að lipurð,
mýkt og glæsileik.
Já, það flaug jafnvel að honum stundum, að sjálfur væri hann sem
lítill, svartur drýsill, sem fyrir óskiljanlegan kraft fermingarinnar hafði
hoppað inn í þessa jarðnesku Paradís.
Og þarna sat hún, ímynd fegurðarinnar, ímynd hinnar óaðfinnan-
legu framkomu, dökkhærð með bjart enni, beint nef og fuglsaugu. Að
vísu hafði hún ekki tekið undir við hann, þegar hann kom, en til þess
gátu verið þúsund ástæður; hávaðinn í ritvélinni, geltið í glugganum,
Tímarit Máls og menningar, 2. h. 1954 10