Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 35
KRISTJÁN BENDER: Forspá Um morguninn, þegar hann kom í vinnuna, sat veiöibjallan úti í horni og hamraði á ritvélina sína. Strax fyrsta daginn hafði hann gefið henni þetta nafn. Af hverju? -— Það vissi hann ekki. Kannski vegna hvítu nælonblússunnar og svarta, brydda jakkans? Kannski vegna þess, að augu hennar voru snör og gljáandi eins og í fugli? Ef vil vill hefur þetta verið hugboð, snöggt, framsýnt leiftur, sem eitt andartak lýsti upp svið vitundarinnar, þegar þessir tveir rafmögnuðu pólar nálguðust. Stundum er skynjunin eins og hilling, sem lyftir ókomn- um atburðum upp í sjóndeildarhring hugans, og þá gerist þetta óskilj- anlega, sem almennt er nefnt hugboð eða forspá. Auðvitað hugsaði hann ekki þannig, því hann var aðeins á fimmtánda ári, þegar hann byrjaði þarna í heildsölunni; það var réttri viku eftir að hann fermdist. — Góðan daginn, sagði hann og hneigði sig klaufalega að horni veiði- bjöllunnar. Hún tók ekki undir, jók aðeins fingrafimina svo small í þykkum póstkröfupappírnum líkt og vélbyssuskothríð. Þrátt fyrir þetta undarlega kerskna nafn, bar hann óblandna virð- ingu fyrir henni, dáði kunnáttu hennar og leikni, bar djúpa lotningu fyrir framkomu hennar, sem honum fannst standa öllu ofar að lipurð, mýkt og glæsileik. Já, það flaug jafnvel að honum stundum, að sjálfur væri hann sem lítill, svartur drýsill, sem fyrir óskiljanlegan kraft fermingarinnar hafði hoppað inn í þessa jarðnesku Paradís. Og þarna sat hún, ímynd fegurðarinnar, ímynd hinnar óaðfinnan- legu framkomu, dökkhærð með bjart enni, beint nef og fuglsaugu. Að vísu hafði hún ekki tekið undir við hann, þegar hann kom, en til þess gátu verið þúsund ástæður; hávaðinn í ritvélinni, geltið í glugganum, Tímarit Máls og menningar, 2. h. 1954 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.