Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 36
146
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
sem stóð opinn, niður umferðarinnar fyrir utan, og síðast en ekki sízt,
hennar eigin hugrenningar. Ef til vill var hún að hugsa um bílinn sinn,
ef til vill var hún að ráðgera skemmtiferð upp í sveit að loknum vinnu-
tíma, kannski austur að Þingvöllum, þar sem reyrgresi og lyng angar
með persónulegum blæ eins og ung stúlka, sem situr úti í horni og hamr-
ar á ritvélina sína.
Það var annars undarlegt, hvað hann gat stundum orðið háfleygur í
návist hennar.
— Tómas, sagði hún og leit upp, — forstjórinn bað mig að segja yður,
•að reikningarnir frá því í gær væru í skrifborðsskúffunni hægra megin.
Forstjórinn óskar, að þér raðið þeim, og farið með þá til innheimtu.
— Já, sagði hann; og löngu seinna, löngu eftir að það var hætt að
bera vott um fágun og meðfædda kurteisi, bætti hann við:
— Ég þakka yður fyrir.
En kurteisin á að koma strax, hún á að fylgja hinum sjálfsagða hjart-
slætti samtalsins, svo hún sé einlæg og eðlileg. Að vísu voru þetta aðeins
skilaboð, og í rauninni hafði hann verið fjarska kurteis, en kannski
heldur seinlátur.
Hann byrjaði að raða reikningunum, skipulagði þá samkvæmt um-
ferðareglunum, upp Hverfisgötu, niður Laugaveg.
Undarlegt að svona rík og falleg stúlka skyldi vinna fyrir sér á þennan
hátt, vera stundaþræll eins og hann; já, eins og hann, að nokkru leyti.
Auðvitað keypti hún ekki brauð og mjólk fyrir kaupið sitt, heldur bensín
og hjólbarða. Var það ekki heillandi tilhugsun og mátuleg svívirðing
við hina mislyndu peninga, að geta brennt þeim og sóað í bensín og olí-
ur, rétt eins og þeir væru óhreint, fánýtt skítti, sem aðeins var hægt að
nota til auðmjúkrar þjónustu?
Jæja, þarna glopraði hann númerinu á Hverfisgötu 80 niður fyrir 68.
— Tómas, — hann hrökk við, því hún sagði það svo snöggt, — viljið
þér skreppa út í búð og kaupa einn Kók?
— Já, takk, sagði hann og fór eilítið hjá sér, því brosið á íbjúgum
vörum hennar var svo leyndardómsfullt og heillandi. Og á meðan hann
tók við peningunum, horfði hann á gullskreytta hönd hennar djúpri,
heitri aðdáun.
Á leiðinni með Kókinn var hugur hans upplyftur, svo einstaklega
heiðskír og frjáls, langt, langt frá hinum hversdagslega veruleika.