Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 37
FORSPÁ 147 — Gjörið þér svo vel, sagði hann og setti flöskuna á skrifborðið fyrir framan hana, rétti út flatan lófann með tveimur tuttuguogfimmeyring- um, og næstum hvíslaði: — Hér er afgangurinn. Hún leit upp sægrænum augum, og virtist stara í undrun á þessar tvær ómerkilegu plötur í framréttum lófa hans. — Æi, þér megið eiga þá, sagði hún þreytulega og hljómlaust, rétt eins og það væri henni sár áreynsla, að þurfa að eyða orði um svo tak- markalaust fánýti. — Takk fyrir, sagði hann þrátt fyrir einkennilega djúpa blygðunartil- finningu, og hann flýtti sér að stinga aurunum í vasann. í þessari andrá opnuðust dyrnar og forstjórinn gekk inn. Hann fór úr skóhlífunum og hengdi upp frakkann, brosti góðlátlega og heilsaði. Skyndilega þagnaði skrölt ritvélarinnar, en í staðinn heyrðist mjúkt og hlýtt: -—• Góðan daginn. Honum fannst rödd hennar lík snertingu, lík mjúkri stroku á vanga. Undarlegt ef þessi rödd var borin saman við hljóm raddarinnar áðan, þetta yfir sig þreytta tómlæti gagnvart tveimur tuttuguogfimmeyringum. Hana, þarna slapp húsnúmerið á Laugaveg 70 upp fyrir Laugaveg 82. Forstjórinn gekk inn í einkaskrifstofuna og hringdi. Aftur byrjaði hvinurinn frá ritvélinni, hár og gjallandi líkt og vél- byssuskothríð. Og hann hugsaði: Einkennilegt með þessar tvær ólíku raddir, önnur mjúk og hlý sem blíð atlot, hin tómlát og þreytt sem andvarp deyjandi manns. En hvernig sem hann hugsaði, var honum ómögulegt að skilja hin tvö ólíku hljóm- svið einu og sömu raddarinnar. Þá kom forstjórinn fram, gekk til hennar með verkefni, lagði það á borðið fyrir framan hana og útskýrði málið, einkar vingjarnlegur með þetta hefðbundna, hlýja bros, sem alltaf fylgdi honum, og gaf honum virðulega, aðlaðandi framkomu. Og hann hélt áfram að raða reikningunum niður eftir Laugavegi, hægt og skipulega til að hlaupa ekki yfir, og til að spara sér spor. Þegar hann var búinn að láta síðasta reikninginn á sinn stað og ætlaði að loka töskunni, leit hann upp. Allt í einu var sem tíminn stæði kyrr, eins og eitthvað ósegjanlega

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.