Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 44

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Síða 44
154 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Við höfðum Akurey á stjórnborða en öskuhaugana á bak. Fyrir stefni bátsins flugu bliki og kolla þessum hröðu og dugnaðarlegu vængja- tökum sem einkenna æðarfuglinn og hafa komið inn hjá mér þeirri hug- mynd að hann sé alltaf önnum kafinn. Þau voru að fara heim til sín, út í Akurey. Á eftir þeim flaug einn lundi, og mátti ekki á milli sjá hvorum lá meira á, honum eða æðarhjónunum, því að lundinn er líka einn þess- ara fugla sem alltaf vita hvert þeir eru að fara. Og hann var að fara sömu leið og þau, út í Akurey, heim til sín. „Vindur hái varð til meins vítt um náhvals móinn, álfar knáir fóru fleins fimmtán þá í sjóinn.“ Loks reis Pétur á fætur og drap á vélinni. „Nú höfum við Keili um staurinn og Engeyjarbæ á suðurgrjótum,“ sagði hann, „og leggjum hér nýju trossuna.“ Mér gafst ekki tóm til að spyrja frekari skýringar á þessu miði, því að Pétur hafði hér engar vöflur á heldur fleygði stjóranum tafarlaust fvrir borð og skipaði snöggt: „Taktu stefnuna á Ráðagerði, og róðu svo eins og Álfur afturkemba í Finnboga sögu ramma.“ Ég var ekki nógu kunnugur Finnboga sögu til að vita fyrir víst hvern- ig sá róður væri, en ég gerði ráð fyrir að róður minn mundi verða þeim mun líkari honum sem ég tæki fastar á, og reyndi að haga mér samkvæmt því. Pétur setti út steinateininn, en korkateinninn raktist út sjálfur jafn- harðan, og allt gekk vel unz komið var að enda trossunnar og Pétur bjóst til að setja út seinni stjórann, þá kom í ljós að steinninn var laus úr fær- inu. „Stopp í klussi!“ hrópaði Pétur. „Stopp í klussi!“ Ég hamlaði snöggt og stöðvaði bátinn. Pétur flýtti sér að hnýta fær- inu aftur um steininn, fleygði honum útbyrðis og mælti: „Sagði ég ekki, þarna hefur Móri leyst utan af steininum og sennilega haldið mig svo vitlausan að ég tæki ekki eftir því og léti trossuna stjóra- lausa í þennan endann. Og má hér segja, að margur heldur mig sig, enda hefur Móri aldrei reitt vitið í þverbakspokum.“ Svo bætti hann við í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.