Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 50
160 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ViS drógum bátinn upp í fjöruna unz afturendinn var allur úr sjó, og gekk okkur vel að losa færið úr skrúfunni. Hrundum síSan aftur á flot í snatri, því viS töldum víst aS Móri hefSi, sökum sinnar alkunnu for- vitni, ekki getaS stillt sig um aS skreppa upp í fjöruna til aS glápa þar og góna, og hér var tilvaliS tækifæri aS skjóta honum ref fyrir rass og láta hann verSa strandarglóp, eSa „atturútsiglara“ eins og þaS er líka stund- um nefnt á sjómannamáli. Og okkur heppnaSist þetta, því ferSin til baka inn meS nesinu gekk eins og í sögu. ViS sigldum inn á Selsvör aftur klukkan hálftvö. Mávarnir stóSu á klöppunum í þéttri röS og horfSu á okkur háfættir og til alls vísir eins og „de tavse kolonner“, sem Kristján X. kallaSi Reykvíkinga er söfnuSust niSur á hafnarbakkann til aS taka á móti hon- um þegar hann var aS heimsækja okkur stundum forSum daga. MaSur- inn í svarta jakkanum sat á klöppunum rétt hjá mávunum og virtust þeir ekki hafa neinn beyg af honum. Hann horfSi líka þegjandi á okkur, og Pétur kallaSi til hans: „Þú munt vilja fregna eitthvaS um vin þinn og agent, hann Móra, og er fljótsagt aS hann var orSinn svo magnþrota af aS kljást viS oss, aS viS sáum aumur á honum og skutum honum á land í BygggarSsvör. Sit- ur hann nú þar og bíSur þess aS þú sækir sig, helzt í sjúkrabil. Og segir mér svo hugur aS hann muni framvegis óska sér annars hlutskiptis frek- ar en fara á sjó meS Pétri Salómonssyni.“ En maSurinn í svarta jakkanum svaraSi engu fremur en endranær, og hélt áfram aS horfa á okkur þegjandi ásamt mávunum. ViS stukkum í land, og Pétur tók fangalínuna og batt henni um stein í fjörunni; þaS átti ekki aS setja bátinn fyrr en á flóSinu. SíSan fór Pétur upp aS húsi sínu og sótti þangaS lítiS borS og fór meS þaS niSur aS bátnum; þetta var sama borSiS og maSurinn í svarta jakkanum hafSi notaS um morguninn; og Pétur hóf aSgerS á grásleppunni. Krían kom og settist rétt hjá honum, og hann reif ræksniS úr einni grásleppunni og losaSi frá því lifrina og fleygSi henni til kriunnar og sagSi: „Vær saa god.“ Því krían hafSi veriS í útlöndum og skildi þessvegna ekki annaS tungumál en dönsku.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.