Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 53

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 53
STJARNAN 163 Það hefur álitið okkur geggjaða og vikið kurteislega úr vegi til þess að láta okkur komast leiðar okkar. Kannski er þetta allt saman ímyndun ein, draumur, óráðsórar, sem við vöknum af einn grámyglulegan og dapran dag. Vinir mínir. Ég er þreyttur, og sál mín er hrygg allt til dauðans. Félagar hans svöruðu engu, því þeir fundu, að þeim var svipað innan brjósts og honum. Gestgjafinn, sem um stund hafði verið önnum kafinn við borðbúnað- inn, gat ekki lengur hamið forvitni sína. Hann gerði sér upp eitthvert erindi, nálgaðist eldstæðið og hóf máls: — Mér hefur skilizt, að þið séuð hingað komnir frá mjög fjarlægu og ókunnu landi. Leyfist mér að spyrja, hvað það er, sem lokkar slík stór- menni svo langt brott frá heimkynnum sínum. Kannski eru það einhver meiri háttar viðskipti, sem------ Einn þremenninganna varð fyrir svörum: — Það eru ekki neins konar viðskipti. Við förum eftir stjörnunni. Gestgjafinn varð forviða: — Stjörnunni? Hvað stjörnu? Annar þremenninganna sagði: — Hefur þú ekki séð hina stóru, nýju stjörnu, sem hefur birzt á himn- inum og boðar fæðingu mikils og dýrlegs konungs? Við höfum fylgt stjörnunni, við höfum yfirgefið heimili okkar og ættland og lagt ókunn lönd undir fót til þess að heilsa konunginum. Segðu okkur nú satt, hefur þú ekki séð stjörnuna?. Þeir horfðu á hann í ofvæni, allir þrír. Gestgjafinn fór dálítið hjá sér, er hann svaraði: — Stjörnuna? Ég hef ekki séð neina stjörnu. Himinninn morar af stjörnum, það vitum við allir, en maður eins og ég, sem er störfum hlað- inn, hefur ekki tíma til að glápa á stjörnur. Ný stjarna? Það getur meir en verið. Hvernig leit hún út? Var hún gul, græn eða rauð? Dró hún á eftir sér hala? Ferðalangarnir horfðu ringlaðir hver á annan. Svo mælti einn þeirra, dálítið hikandi: — Hún var-----það er ekki hægt að lýsa henni. Hún er engri annarri stjörnu lík. Gestgjafinn leit á hann, eilítið tortrygginn:

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.