Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 58
168 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hefur Indíánum mjög fækkað, þeim er halda sér við tungu feðra sinna, og eru taldir nú um tíu milljónir samtals um alla álfuna. Tungumál þeirra skiptast í fjölda (60-70) flokka, sem menn vita ekki vel um skyld- leika á, en flokkar þessir skiptast síðan í einstök tungumál. Flestir munu tala flokk Quechua-mála í Suður-Ameríku (um 4 millj.). Það lætur að líkum, að tungur þessar eru næsta sundurleitar. Fjöldi þeirra hefur það einkenni, að einstök orð gegna allt öðru hlutverki en í þeim málum, sem við þekkjum bezt. Þau eru fremur eins konar kjarni, sem ótal endingar bætast við til að láta í ljósi hugsanir, sem heilar setningar þarf til í öðr- um málum. Mál sem þessi eru kölluð agglutinerandi mál, mætti e. t. v. kalla þau viðskeytamál á íslenzku. XVIII Grænlenzka Eitthvert skýrasta dæmi um slík mál er annars tunga nágranna okkar, grœnlenzka. Þegar við komum þangað, skulum við muna eftir að kalla landsmenn ekki eskimóa, því að þeim fellur sú nafngift jafnvel enn verr en okkur, þegar við erum kallaðir svo. Þetta orð merkir liráœlu, og við skulum heldur kalla þá og aðra frumbyggja ínúka, þ. e. „menn“, eins og þeir kalla sig sjálfa (et. ínúki). I grænlenzku eru þrjár tölur, eintala, tví- tala, fleirtala, og eignarafstaða er táknuð þannig, að nafn eigandans er í nefnifalli, ekki eignarfalli, en hins vegar er nafn eignarinnar haft í sér- stöku falli. Svo lítill munur er á mállýzkum Grænlendinga og ínúkanna í Norður-Kanada, að þeir skilja hver annan án mikillar fyrirhafnar svo að segja undireins, þótt talið sé fullvíst, að þeir hafi verið aðskildir í 600- 1000 ár a. m. k. XIX Litazt um í heimi þjóðtungna Fræðimenn hafa reynt að telja saman þau tungumál, sem töluð eru í heiminum í dag, og komizt að misjafnri niðurstöðu, svo sem vænta má. Rit Grays, Foundation of Language, telur málin 2796, og eru þá mál-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.