Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Page 68
178
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
þar með gefnir stórmiklir möguleikar fram yfir allar aðrar þjóðir heims
til áhrifa á menningarsviðinu. Og eru nokkrar líkur til þess, að nokkur
stórþjóð taki upp tungu annarrar stórþjóðar sem alþjóðamál? Eru
nokkrar líkur til þess, að t. d. Frakkar, Spánverjar eða Arabar mundu
fallast á að viðurkenna ensku sem alþjóðamál, að maður tali nú ekki
um Rússa eða Kínverja eins og nú er málum háttað? Og þetta vanda-
mál er engu síður óleyst, þótt vonir manna rætist um varanlegan heims-
frið. Það ber allt að sama brunni: það er hvorki framkvæmanlegt að
taka upp lifandi né dauða þjóðtungu sem alþjóðamál. Þá er eftir sá
möguleiki að búa til sérstakt mál til þessa. Og sannleikurinn er sá, að
tilraunir til þess eru ævafornar (sanskrít).
Stundum hefur verið reynt að búa til afbrigði lifandi tungna, er nota
mætti sem alþjóðamál. Jafnvel eru þess dæmi, að latínu hafi verið breytt
í þessum tilgangi (latino sine flexione, er ítalskur stærðfræðiprófessor,
G. Peano, kom með fram um aldamótin síðustu), þar sem beygingum
öllum hefur verið útrýmt, en orðasafnið er tekið úr latínu að svo miklu
leyti sem unnt er. Um 1930 kom C. K. Ogden fram með tillögu um ein-
faldari gerð enskrar tungu og kallaði Basic English (stofnensku, basic =
úr British, American, Scientific, International, Commercial). Og nú er
unnið að því að skapa sams konar uppsuðu úr frönsku, sem mundi þá
eiga að keppa við stofnensku. Ogden tókst að fækka svo mjög orðstofn-
unum, sem hann þurfti að nota, að í stofnensku eru þeir ekki nema 850,
en í stað orðanna, sem sleppt er, notar stofnenskan umritanir, t. d. his
face became sad í staðinn fyrir he was sad. Reynslan hefur sýnt, að í
slíkum umritunum er ógjörningur að ná nákvæmum blæbrigðum stíls-
ins, svo að hann verður jafnan mjög fátæklegur og sviplaus.
Fleiri tillögur hafa komið fram um að breyta þjóðtungum til þess að
gera þær að alþjóðamáli, en allar slíkar tilraunir eru haldnar fleiri eða
færri göllum þjóðtungnanna, t. d. hefur stofnenska stafsetningu og fram-
burð á sömu lund og enskan, hvort tveggja þar með í mesta máta óreglu-
legt.
XXIII
Tilraunir fyrri tíma til að búa til tungumál
Ein elzta tilraunin til að búa til alþjóðamál, sem nú er kunnugt um,
var gerð af þýzkri abbadís á 12. öld, Hildigerði nokkurri (Hildegardis)