Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 80

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 80
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR innbrotsþjófur. Vinkona hans fær vinnu við að dansa í lélegu söngleikahúsi. Þegar hann sleppur úr fangelsinu fær hann vinnu sem þjónn á sama stað og syngur vísurnar sínar frægu. En lögreglan eltir vinkonu hans uppi og vill koma henni fyrir á uppeldisheimili handa munaðarleysingjum. Þau yfirgefa veitingahúsið í leit að nýjum æfintýrum ... Borgarljósin höfðu verið þanin eins og strengur sem er að því kominn að bresta. En í Nútímanum var Chaplín léttúðugur, bæði í leik sínum og söguþræði. Sumir töldu það merki um slen eða hirðuleysi. Þeir höfðu ekki skilið eða ekki viljað skilja rauða þráðinn í Nútímanum. Þrátt fyrir fullkomna ástargæfu virtist nokkuð slakað á í síðasta hluta myndarinnar, því hann átti að sýna örlög milljóna annarra atvinnuleys- ingja. Ef Chaplín hefði viljað ljá mynd sinni örlagaríka reisn, hefði hann aðeins þurft að breyta atburðarásinni. Fyrst hefði hann get- að sýnt Charlie, sem leitar að vinnu og fær aðeins snöp. Síðan hefði söguhetjan getað fengið vinnu í stórri verksmiðju og orðið vitstola af að standa við færibandið. Loks hefði hann getað gripið rauða fánann. En ef myndinni hefði lokið með því at- riði er auðvelt að ímynda sér hverjum árás- um Nútíminn hefði orðið fyrir. Blöðin hefðu þegar leitað uppi ýmsar fyrri yfirlýs- ingar Chaplíns og m. a. notað sér söguburð Mary Reeves, en hún hélt því fram að hann hefði sagt við sig í fyllstu alvöru: „Bráðum verður allur heimurinn bolsévískur, Eng- land eins og öll önnur lönd. Og ég verð kjörinn forseti brezka sovétlýðveldisins." Chaplín lagði ekki áherzlu á hádrama- tískan söguþráð heldur skaut inn í mynd- ina eins miklu af kátínu og skemmtiatrið- um og unnt var. Fyrsta hálftímann setti liann meginviðfangsefni Nútímans á svið með óvenjulegum áhrifaþunga. En síðan var svo að sjá sem hann vildi fá áhorfendur til að gleyma dirfsku sinni með gamanlát- um og skoplegum tilburðum. Þessi stílbrögð urðu til þess að æði mörg blöð gerðu lítið úr Nútímanum og lýstu Chaplín sem úreltum og meinlausum manni, sem lifði í endurminningum um frægð for- tíðarinnar. En önnur blöð, þau afturhalds- sömustu, skrifuðu á hinn bóginn: Chaplín er gagnrýndur fyrir aS vera bitr- ari og öfgajyllri en nokkru sinni fyrr. Manni finnast stjórnmálaskoðanir hans um þessar mundir býsna áþekkar kommúnisma. Honum fyrirgefst ekki, að hann birtist nú skýrar en nokkru sinni jyrr sem svarinn fjandmaður atvinnurekenda og lögreglu. I Frakklandi kom þetta sjónarmið fram hjá André Antoine, sem hafði verið fremst- ur leikhúsmanna í Frakklandi fyrir 1914, en lauk ferli sínum sem slakur kvikmynda- gagnrýnandi. Heildaráhrifin eru, skrifaði hann í Le Journal, ísmeygilegt spott með bolsévískum keimi. Pierre Leprohon svaraði Antoine með þessari skilgreiningu á atvikinu, er Chaplín grípur rauða fánann: Þegar Charlie birtist í þessu atriði sem uppreisnarleiðtogi, veit hann ekkert af því sjálfur. Aðvörunarklútur dettur af vörubíl. Charlie, sem alltaf hefur verið hirðumaður, hleypur á eftir bílnum til að setja klútinn á sinn stað, og kröfugöngumenn þurfa ekki meira til að líta á klútinn sem jána og Charlie sem leiðtoga sinn. Hver veit, hvort Chaplín er ekki með þessu að hœðast að trúgirni þessara vesl- ings manna og sýna, að þeir taka ekki einu sinni eftir því, að sá sem á fánanum heldur og fer í fylkingarbrjósti veit ekki af nœrveru þeirra og hefur ekki hugmynd um hvert hann er að hlaupa? 158
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.