Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 19
BÓKMENNTIR í BLINDGÖTU hetjuna að rótlausum flóttamanni á jörð. Þessi frásagnarháttur var bendl- aður við „dybde-psykologi“ (djúp- sálarfræði) og þótti mjög merkileg- ur, enda í tízku í Noregi og víðar fyrir heimsstyrjöldina. Hann mun hafa átt rætur í Freudismanum. Yfirleitt var fagnaðarerindi þessara höfunda mjög borgaralegt og einfalt: frelsi bældra hvata —- og þá einkum frjálsar ástir. A styrjaldarárunum urðu hinsveg- ar brýnni vandamál efst á baugi. En Sandemose hafði fest rætur í tímanum fyrir styrjöldina, og nú skrifar hann okkur þaðan um vandamálin: Enn eru það bældar bvatir, illkvittni, ná- búakritur, sem eru ógæfa mannkyns- ins, og frjálsar ástir hið guðdómlega lausnarorð. (Á því herrans ári 1958!) I Varulven er þríhyrningurinn eilífi (hjón og friðill) dæmi um hið fullkomna mannlíf, umkringt af „jantemennesker“, illgirni og öfund. Efni bókarinnar er erfitt að rekja, bún er í rauninni ekki annað en sóp- dyngja af slúðursögum um „gott“ og „vont“ fólk, sem lesandinn trúir ekki nema hálft í hvoru. Loks virðist höf- undurinn gera sér ljóst að sálfræði- legur skáldskapur án félagslegra tengsla sé dálítið út í hött og reynir að bjarga skáldsögunni með því að gefa í skyn að fyrrverandi nazistar verði kvensöguhetjunni að bana, en þá kemur á daginn að lesandinn bef- ur aldrei trúað því almennilega að þessi kvenpersóna væri lifandi, og drama sögunnar rennur þar með út í sandinn. — Það skal tekið fram, að þessi hjátrúarfulla saga um frjáls- ar ástir sem sáluhjálparatriði annars- vegar, og „varúlfinn“ í mannssálinni hinsvegar, hefur fengið mjög góða dóma hjá norskum gagnrýnendum. 14. Sigurd Hoel, sem nú mun vera talinn öndvegishöfundur Norðmanna, eftir að Hamsun leið, tekur miklu tímabærara efni til meðferðar í skáldsögu ársins 58: Troldringen. Þetta er saga um hugsjónamann sem verður að lúta í lægra haldi fyrir hnausþykkri heimsku meðbræðra sinna, og er að lokum tekinn af lífi. í stuttu máli: Ungur maður kemur í af- skekkta sveit (á afskekktum tíma), kvænist ríkri ekkju og hefst handa um jarðræktarframkvæmdir, sem eru algjör nýlunda í sveitinni. Hann dreymir um að breyta þessu barðbýla héraði í blómlega sveit, kenna bænd- unum til nýrra verka, lyfta þeim á hærra menningarstig. En bann rekur sig fljótlega á tregðu manna til að breyta um lífsháttu, hjátrú þeirra og tortryggni. Fjársterkur stórbóndi kann hinsvegar að hagnýta sér þessa mannlegu breyzkleika og eflir þá gegn söguhetjunni, sem að lokum bíður hörmulegan ósigur. Stórbóndinn hef- ur gildar ástæður fyrir breytni sinni: hann er umboðsmaður greifa nokkurs er safnar skógjörðum, og með ófyrir- leitnum klækjum prettar hann jarð- 9

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.