Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Qupperneq 16
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ingamanna. En í stað þess að draga
þær óhj ákvæmilegu ályktanir af þess-
um niðurstööum að óheft auðvalds-
skipulag henti ekki íslendingum og
að við verðum að fara aörar leiðir í
samræmi við hinar sérstöku aðstæð-
ur okkar, hefur ályktun þeirra orðið
sú að slíkt þjóðfélag verði að líöa
undir lok. Ef óheft auðvaldsskipulag
og sjálfstætt ísland geta ekki farið
saman, skal sjálfstæÖinu fórnað og
ísland gert minnsti hreppurinn í
stóru auövaldsríki. Með þessari nið-
urstöðu er bundinn endir á hugsjóna-
lega baráttu sem háð hefur verið hér
á landi áratugum saman. Hinir fyrstu
og beztu leiðtogar borgarastéttarinn-
ar á íslandi trúðu því af einlægni að
auðvaldsskipulagið myndi færa ís-
landi farsæld og velmegun. En spor-
göngumenn þeirra sem nú lifa vita af
reynslunni að þessar vonir hafa
brugðizt með öllu, og með tillögunni
um aðild íslands að Efnahagsbanda-
laginu játa þeir skipbrot sitt endan-
lega. En stjórnmálalegt ofstæki þeirra
er slíkt, að þeir telja skipbrotið sönn-
un þess að sjálfstætt íslenzkt þjóðfé-
lag fái ekki staðizt.
í átökum þeim sem framundan eru
verður að sjálfsögðu reynt að blekkja
og flækja þjóðina inn í Efnahags-
bandalagið án þess að menn geri sér
að fullu ljóst hvað hafi gerzt; það
verður sagt að sjálfsagt sé að kanna
máliö, sækja um inngöngu og athuga
hvaða sérstöðu ísland geti fengiÖ o.
s. frv., og þessi málflutningur hefur
þegar hlotið undirtektir hjá valda-
mönnum Framsóknarflokksins sem
bera kápuna á báðum öxlum eins og
jafnan fyrr. En ríkisstjórnin er ekki
að kanna mál eða hugsa sig um;
hún hefur þegar tekið sínar ákvarð-
anir og er önnum kafin við að fram-
kvæma þær. Það þarf ekki að lesa
samninginn um Efnahagsbandalag
Evrópu vandlega til þess að sjá það
að öll stefna núverandi ríkisstjórnar,
viðreisnin, er undirbúningur að þátt-
töku íslands. Hinn svokallaði frjálsi
innflutningur, stefnan í viðskiptamál-
um og peningamálum, frj áls álagning
og annað slíkt; allt á þetta að aðlaga
ísland skipulagi hins nýja stórveldis.
Nú fyrir skömmu skýrði Gunnar
Thoroddsen fjármálaráðherra svo frá
að ríkisstjórnin myndi beita sér fyrir
því að vörutollar yrðu lækkaðir veru-
lega á hátollavörum, en ríkissjóöur
tæki í staðinn tekjur með hækkuöum
söluskatti sem legðist jafnt á allt.
Þessi breyting er eins og ég sagði
áðan eitt frumskilyrði þess að ríki
geti tekið þátt í Efnahagsbandalag-
inu; það er verið að framkvæma fyr-
irmæli þess áður en aðild íslands hef-
ur verið formlega samþykkt.
Og gengislækkunin í haust, þetta
einstæÖa óhæfuverk, er liður í sömu
framkvæmdum. Um það hefur marg-
sinnis verið spurt hvers vegna gengis-
breytingin hafi numið rúmum 13%
254