Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 85

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 85
ERLEND TÍMARIT verk fyrir það að þar eru leidd saman þjóð, sem er að berjast fyrir virðingu sinni og arftaki þeirra gömlu Ameríkana, sem ein- mitt gerðu ekki annað en að berjast fyrir virðingunni og tókst að frelsa sjálfa sig. Þessi stílfærði harmleikur um aðskilnað elskendanna er táknrænn um ósigur þeirrar vonar, sem er sameign allra manna. Okkur er líka kunnugt um hlutverk Hemingways í frelsun Parísar og minnumst nokkurra mjög hugþekkra yfirlýsinga hans síðan. Samt hefur Hemingway sem rithöfundur stirðnað í þóttafullri en geldri afstöðu eftir því sem hann ræktaði sérdeilis einstaklings- hygginn persónuleika sinn. Seinustu ástir gamla hershöfðingjans í Yfir ána og inní skóginn minna okkur á form hinnar dauðu skáldsögu. Og gerviklassísisminn í Gamli maSurinn og hafiS er ekki alveg laus við að valda mér nokkrum ugg þrátt fyrir yfir- burðasnilli í veiðilýsingunum. Þar finn ég lieldur mikinn skyldleika við verkin sem formalistagagnrýnin þarfnast til að renna stoðum undir textaskýringar sínar. Stóíkar- inn gamli, vitaskuld er það Hemingway sjálfur, jafnframt því að vera hinn nafn- lausi maSur, óumbreytanlegur eftir þörfum, örlög hans sem hrikalegust til þess hann verði ótímabundinn; og svo er ljóðræna þessarar frummyndar samt fóðruð með þjóðsögum frá Ameríku á tímum frum- byggjanna, sem voru Fenimore Cooper svo hjartfólgnir og stunduðu veiðar og fiskirí af nauðsyn en ekki til dægrastyttingar. Loks verður svo einskonar einkasamtal böðuls og fórnardýrs milli sverðfisksins og söguhetj- unnar; átökin sem svo verða, þar sem mað- urinn mætir höfuðskepnunum, dæmast gam- alkunn og fylla óafvitandi hóp sem mikið hefur verið rætt um. í stuttu máli: hand- bragð meistarans hneigist til innantómrar snilli. Að ódæmdum liandritunum, sem við, að sögn, fáum að sjá birt síðar, verða verk hans, nýkrýnd Nóbelsverðlaunum, athyglis- verð fyrir kraft sinn, fyrir snilldarlega gerð og vissa tign, þó þau séu á pörtum nokkuð mikið flúruð. Þau eru með því mikilvæg- asta frá þessari kynslóð aldarinnar, sem ný- lega er orðin sextug. Hemingway er þegar orðinn að þjóðsögu, en sannur mikilleiki hans kemur vissulega ekki af þeim afskræmingum, sem auglýs- ingastarfsemin hefur, viljandi eða ekki, gert: hann er fólginn í því að honum hefur tekizt að leggja í sögur sínar, sem stundum eru býsna skyldar gömlu kvikmyndunum, hugsanir nútíma Bandaríkjamanns um ör- lögin, sem hann stöku sinnum horfist í augu við til að flýja þau á öðrum stundum. Ógeð hermannsins frá 1917 er satt, eins og sjálf- boðaliðinn sem slæst í hóp spönsku lýðveld- issinnanna, eins og lýðræðissinninn, sem skynjar þær efnahagslegu ástæður, sem ráða vesælum kjörum handverksmannsins. En hvað sem Hemingway er stórkostleg- ur meistari hins óbrotna talmáls hefur hann þó, af ástæðum sem kannske eru per- sónulegar en eiga þó rætur í bandarísku þjóðfélagi dagsins í dag, stundum tekið yf- irborðslega og óþægilega afstöðu: afstaða hins fífldjarfa, unga íþróttamanns í byrj- endaverkum hans er þó áreiðanlega sannari spegilmynd þess manns sem hann var og nær hans innra eðli en ólympísk hegðun hans síðustu árin. Til þess bendir dauði hans að minnsta kosti. Verum þess þó viss, ef enn bætast við verk til að auðga þann Hemingway sem við þekkjum, þá munu þau þrátt fyrir allt villandi hik í hugsun hans, lýsa hans aðalsmerki, að þekkja það sem göfugt er. Cyrille Arnavon Ur Europe, september. Þ. Þ. þýddi. 323
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.