Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 27

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 27
SAGNFRÆÐIN OG ÞROUN HENNAR Um 1500 f. Kr. voru Föníkar, sem bjuggu á Sýrlandsströnd mesta far- manna- og verzlunarþjóð við Mið- jarðarhaf. Þeir voru raunsæir, en ekki frumlegir menn, eins og kaup- manna er siður; þeim þóttu mynd- rúnir Egypta óþarflega flóknarogtor- lærðar og breyttu þeim og gjörðu sér stafróf, sem líktist í grundvallaratrið- um því stafrófi, sem við notum enn í dag. En enda þótt skriftin yrði ein- föld og fremur auðlærð, þá hélzt það fram á 12. öld, að einungis mjög fáir innan hvers þjóðfélags kunnu að lesa og skrifa; þær íþróttir voru forrétt- indi, sem valdastéttir þjóðfélagsins nutu. Að vísu eru til einstakar undan- tekningar frá þessari almennu reglu meðal þjóða. Skriftar- og lestrarkunn- átta varð t. d. mjög almenn meðal ís- lendinga þegar á 13. öld, en það er al- gjört einsdæmi um þjóð á þeim tíma. Öll þjóðfélög, sem hafa tekið list- ina að skrifa í þjónustu sína, hafa verið deild að meira eða minna leyti í stjórnendur og þegna; einna minnst stéttagreining mun hafa verið hér á landi, er íslendingar tóku að skrifa á 11. öld. Þegar skrift var fyrst tekin upp í suðvestur Asíu, Egyptalandi og aust- ur í Kína, ríkti þar alls staðar ein- valdsstjórnir konunga. Guðlegur kon- ungur sat þar í forsæti voldugs land- eigendaaðals, sem var studdur fjöl- mennri sérréttindastétt presta og drottnaði yfir miklum múg hálf- ánauðugra leiguliða, þræla og allfjöl- mennum stéttum handiðnamanna og kaupmanna. Síðar, eða á járnöld við Miðjarðarhaf, ríkti þar í nokkrum löndum lýðræðisskipan í stjórnar- háttum, t. a. m. í Grikklandi og sums staðar á Ítalíu. í þessum lýðræðis- ríkjum fornaldar var allskörp stétta- skipting og lýðræðinu þröng takmörk sett, þótt miklu stærri hluti landsbúa ætti þar aðild að stjórnarstörfum en í einvaldsríkjunum. Á miðöldum breytust hlutföllin lítið milli yfir- manna og undirgefinna; stjóm ríkja var þá yfirleitt í höndum konunga, sem ríktu í skjóli fjölmenns lénsaðals, hefðarklerka og klaustramanna, sem drottnuðu yfir hálfánauðugum bændamúg, iðnaðarmönnum og borg- urum. í byltingum 16. og 17. aldar, sérstaklega í Hollandi og Englandi, urðu talsverðar breytingar á ráðandi stéttum; þá öðluðust auðugustu iðn- rekendur og kaupmenn að nokkru pólitískt hlutgengi við hlið landeig- endaaðalsins, en í frönsku bylting- unni 1789 leystu borgararnir aðalinn af hólmi við stjórn ríkisins. í frönsku byltingunni og borgarabyltingum 19. aldar öðlast hlutfallslega fleiri menn pólitískt áhrifavald en nokkru sinni áður; við segjum með öðrum orðum, að þá hafi lýðræði eflzt á Vesturlönd- um. Þessi sjónhending aftur í aldur gef- ur okkur til kynna, að allt fram á 18. öld hafi sagnaritun ekki hvílt á mjög 265
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.