Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 96

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 96
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR heiðni og kristni og benda því með gildum rökum til tímamótanna á dögum Þórðar Kolbeinssonar og Bjarnar Hítdælakappa. 13. aldar höfundur er í meira lagi ólíklegur (hversu slýngur sem hann er) til að gera sér far um að sýna slíkt í atriðum einsog orustuvœttum sem skapa himintúngl („randóps vættir þærs skópu hlýrn“) eða hjálmi skrýddrí valkyrju guðs („hjalm- faldin armleygjar orma Ilmr dagleygjar hilmis"), (33. og 34. vísa). Hallfreður vand- ræðaskáld hefur leingi frægur verið fyrir náskyldan tvískinnúng í kveðskap sínum, en þótt Bjarni sjái sóma sinn í að taka það til athugunar, er það síður en svo viðhlít- andi og sízt sannfærandi. Þá er það tortryggilegt að Bjami skuli í ástavísnasamtíníngi sínum sleppa hinni al- kunnu vísu Hallbjarnar úr Landnámu: Olkarma lætr, arma eik firrumk þat, leika Lofn fyr lesnis stafni línbundin mik sínum. Bíða munk of brúði, böl gervir mik fölvan, snertumk harmr í hjarta hrót, aldrigi bótir. Ef þessi vísa uppfyllir ekki skilyrði Bjarna um „tilfinningasemi, ástarþrá eða harm“ þá hefði hann mátt sleppa fleirum útaf list- anum. 3 Svo eru það samanburðarvísindin, en þau eru einna verst. Átakanlegt dæmi um þau er samanburðurinn á kynnum Ingólfs og Valgerðar og Tistranssögninni (bls. 177— 180). Með sömu aðferðum og Bjarni beitir þar mætti víst færa sönnur á flest sem manni dytti í hug. Svipaður veikleiki er í uppátækinu um Þorkatlana, feður kvenna í tveim vísum; þar á ekkert að hafa komizt að nema stælíng (harla kuldalegur vitnis- burður um sjálfstæða getu rithöfundar hvað snertir sögupersónur; en þetta er líka algeingt í ritgerðum Barða Guðmundsson- ar um Njáluhöfund). Eða þá orðheingils- hátturinn um gistíngamar í Gnúpsdal (bls. 64). Af slíkum „fræðimanns“tiktúrum úir og grúir. Víða er Bjarni þó glöggur á sterk samanburðareinkenni, t. d. um fyrstu heim- sókn Þormóðar í Arnardal og Kormáks í Gnúpsdal (bls. 64—65) eða þá um sendiför Sigurðar konúngs til Gregoríusar Dagsson- ar og Upplandaför Hallfreðar (bls. 198— 201), og geta raunar atriði sem þessi verið algeing flökkuminni án beinna teingsla. En rannsóknir sem byggjast í ríkustum mæli á orða- og nafnalíkíngum heimilda eru orðnar dálítið þreytandi, þótt slíkt geti vissulega bent á hugsanlegar leiðir. Þessi aðferð er árátta hjá Bjarna, og þarsem hann ræðir uppistöðu og uppruna Bjarnar sögu með tilliti til ívars þáttar fngimundar- sonar, verður mér að taka til gamans klausu úr Árbókum Espólíns við árið 1599: „... hafði beðið Oddnýjar Jón Dan af Vestfjörðum, son Magnúsar Jónssonar, og var hún honum heitin, en kunnleiki var kallaður með þeim Birni og Oddnýju.“ Ég efast ekki um að Bjama hefði þótt þessar línur mikils nýtar varðandi uppruna persóna og efnis í Bjarnar sögu, ef efni klausunnar stæði skráð á einmana skinn- blaðsslitur frá öndverðri 13. öld. En það vill bara svo neyðarlega til að þetta er skrifað á 19. öld öndverðri og fjallar um sögulega at- burði seint á 16. öld, svo höfundur Bjarnar sögu stælir það fjandakornið ekki — nema Bjarni taki alvarlega í taumana. Þetta bendir satt að segja á hversu samanburðar- vísindi af þessu tagi geta leitt til grátbros- legs aulaháttar. Ofanskráðri klausu Espó- líns svipar sízt minna til aðstæðnanna í Bjamar sögu heldur en til dæmis ívars þátt- ur gerir, en Bjarni talar um hann sem fyrir- mynd Bjarnar sögu af mikilli sannfæríngu. 334
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.