Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1970, Side 19

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1970, Side 19
Nokkrir hnýsilegir staSir í fornkvœðum stúngið í möppur ad calendas græcas þegar búið er að sjónvarpa þeim einu- sinni. Dróttkvæður skáldskapur miðast umfram alt við minnistækni. Afturámóti virðist líklegt að kveikjur að ýmsum þeim skáldskap sem eddu- kvæði mynda hafi flust híngað á kristnum tíma og sum laungu eftir kristni- töku. Til dæmis fréttist fyrst til Hlöðskviðu í Orkneyum á 12tu öld; hún gæti sosum vel verið þar upprunnin ef ekki er hægt að sanna að hún sé ort hér. Það væri að minstakosti síst ótrúlegra en að eitt hið mesta undur ís- lenskrar ljóðlistar Darraðarljóð skuli vera ort á Skodandi á lltu öld. Völs- únga íslensk bæði í bundnu máli og óbundnu gæti verið til orðin fyrir áhrif af niflúngakveðskap þýskum, en um hann eru aungvar minjar til í Þýskalandi frá þeim tíma sem þj óðverj ar kalla ottónskan og ber upp á svip- að skeið og söguöld íslands, því síður frá karlúngatíma. Niflúngaljóð hin þýsku eru einsog fyr var sagt 13du-aldar skáldskapur. Ekkert er vitanlega því til fyrirstöðu að einhver efni og nöfn sem koma fyrir í völsúngaskáldskap okkar hafi borist úr Þýskalandi til íslands á 13du öld og þá með svipuðum hraða og til að mynda Felsenborgarsögurnar bárust híngað úr Þýskalandi snemma á 19du öld. Þau „goðfræði!eg“ kvæði í eddu þar sem bersýnilega er verið að narrast að guðunum einsog í kvennafarssögum af Óðni bæði í Völuspá og Hávamálum, eða þar sem goðin eru flimtuð einsog í Hárbarðs- ljóðum, Þrymskviðu og Lokasennu og víðar, eru ekki mjög líkleg til að vera uppsprottin í Noregi né öðrum löndum þar sem trúað var af alhug á þessa guði. Lýsíngar Íslendíngasagna á ásatrú svo á íslandi sem á Norður- löndum hneigjast til að taka skakkan pól í hæðina af ósjálfráðum saman- burði við hið kaþólska kennivald sem hafði stundað hér samræmdan kristinn áróður með einkarétti í margar kynslóðir. Inntak fomrar vættatrúar í bók- lausum löndum hér nyrðra hefur verið ókerfað þjóðsagnadót í nokkurskonar fljótandi formi án fastra púnkta sem hægt væri að styðja fíngri á; enda aungva hugsun hægt að festa á bók og þarafleiðandi ekki hægt að móta fasta kenníngu með katekisma og trúarjátníngum. Guðimir hvortheldur þeir voru æsir, jötnar eða vættir voru aðeins innviðir í þjóðsögnum sem tóku stakka- skiftum öld framm af öld; guðir gátu meira að segj a breytt um kyn í rás tímans einsog Njörður sem var dama á tímum Tacitusar en er í Eddu orðin karlguð eitthvað teingdur sjó — að minstakosti bendlaður við njarðarvött. Veislu- kvæði eftir vesturislendíng, prentað í íslenskum kanadablöðum kríngum alda- mótin, hefur hliðstætt dæmi: „hann Venus ei frá okkur víki“. Alment hugará- stand á ólæsu svæði þar sem lausmótuð þjóðtrú geisar í ímyndunaraflinu er fræðimönnum nútímans síst auðveldara skilníngs en þeim mönnum sem sömdu 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.