Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Side 14

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Side 14
Tímarit Máls og menningar eða léttúðug kringilyrði þegar verið var að vinna fyrir málstað byltingar- innar. Þetta rann upp fyrir mér þegar ég heyrði tvær ritgerðir úr bók minni, Það sem ég hef skrifað, er fjölluðu um hliðstætt efni. En þær eru Menn- ingarástand sveitanna, sem kom í fyrsta bindi Rauðra penna, en hin síðari kom í Tímaritinu löngu seinna og bar heitið Blessuð sértu sveitin mín. I fyrri greininni er allt skrúfað og fast neglt, en í hinni síðari er allt léttara í vöfum og sveigjanlegra. Og þar fann ég sjálfan mig afmr mér til mikillar ánægju. Eg kom stundum á fundi til ykkar í Félagi byltingarsinnaðra rithöfunda. Mér fannst það gaman. Þetta voru allt elskulegir menn, en af ólíkum toga. Sumir voru atvinnulausir útigangar mennmnarlitlir, en þó berandi í brjósti einhverja þá heimskulegustu löngun sem nokkur fær alið með sér, að gerast rithöfundur. Aðrir vom þegar kunnir sem rithöfundar. Og enn aðrir há- lærðir í bókmenntalegum fræðum, kunnandi skil á hinum ólíkusm bók- menntastefnum, ismum og hverskyns straumhvörfum í andans heimi, bæði hérlendis og erlendis. Yfir þessu öllu trónaðir þú sem andlegur leiðtogi, með slíkum elskuleg- heitum að það gat fengið hinn harðsvíraðasta mann til að kenna yls um hjartaræmr. En ég sá að þarna átti ég ekki heima. Og það voru útigangsmennirnir sem hræddu mig burt. Mér hraus hugur við þeirra hlutskipti, þeir sem ætluðu að bíða eftir byltingunni og voru reiðubúnir að þola hungur, þorsta og klæðleysi unz endurlausnin kæmi og þeir fengju ríkulega umbun trú- mennsku sinnar við heilagan málstað. Nú hefur það sannazt á mér sem Hallgrímur kvað: þetta sem helzt nú varast vann varð þó að koma yfir hann. Nú hafa þau undur gerzt að Rithöfundafélag Islands hefur boðið mér sæti í sínum hópi. Og þótt ég hafi aldrei litið á mig sem rithöfund og viti að raunverulega á ég ekki heima í þessum hópi, þá gat ég ekki verið sá sérvitringur að hafna boðinu, því ég veit að það var fram borið af góðhug og velvilja í minn garð. Þú nefnir bók þína Enginn er eyland, og segir það vera tilvitnun í ein- hvern erlendan höfund sem ég man nú ekki lengur að nefna. Mun þar vera átt við að enginn geti lifað lífinu einn og öðrum óháður. 316
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.