Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Síða 102
Tímarit Máls og menningar
og gagn af lestrinum, heldur kenndi
hann mér og að meta atómljóðin meir
en áður við lestur þýðinga hans á
þeim, þó að eigi hafi ég náð tökum á
því formi. Verður þá eigi sagt, að sé
unnið fyrir gýg. Enda þó að eigi sé allt
með jöfnum ágætum — textarnir eru
að sjálfsögðu misjafnir — er fengurinn
auðsær og mikill í heild, bæði fyrir
Norðmenn, sem eiga að njóta, og Is-
lendinga, sem bera gæfu til að gefa —
og læra af um leið.
Báðir aðilar mega vera Orgland inni-
lega þakklátir fyrir alla þá græðlinga,
sem hann hefur gróðursett í norskan
jarðveg. Megi þeir bera lauf og lim,
blóm og aldin, ásamt heimafengnum
gróðri, sem ilmar af og ber ávöxt um
Noregs breiðu byggðir og þröngu, en
skjólgóðu daladrög.
Um bcektir Þórbergs Þórðarsonar í útgáfu Máls og menningar
Árið 1964 gaf Mál og menning út Ofvitann eftir Þórberg Þórðarson; var það önnur
prenmn þessa rits, en það kom út í frumútgáfu árin 1940 og 1941. Ef satt skal segja
voru forráðamenn Máls og menningar þá ekki allir vissir um réttmæti þeirrar ákvörð-
unar, og töldu sumir hæpið að eftirspurn gæti verið nægileg eftir endurútgáfu rits
sem hafði komið út „aðeins“ aldarfjórðungi áður. Tilraunin tókst þó ekki ver en svo
að árið 1969 var haldið áfram á sömu braut með útgáfu Ævisögu Árna prófasts, og
hefur útgáfu á ritum eftir Þórberg Þórðarson verið haldið áfram óslitið síðan: Is-
lenzkur aSall, Frásagnir, Bréf til Láru, Edda, I Suðursveit, Sálmurinn um blómið, og
nú er verið að vinna að útgáfu Rauðu hcettunnar sem verður aukin nokkrum rit-
gerðum um svipuð efni og sú bók fjallar um. Skal nú til gamans og fróðleiks gerð
nokkur grein fyrir eintakafjölda og sölu þessara bóka. Upplag bókanna hefur verið
frá 3000 og upp í rúmlega 4000 eintök, en Ofvitinn hefur verið prentaður þrisvar
á þessum tíma, samtals í 9000 eintökum, Bréf til Láru tvisvar, samtals 6000 eintök.
Alls hafa verið prentuð af þessum níu bókum um 42.500 eintök. Árið 1971 kom
auk þess út sem pappírskilja ritgerðaúrval Þórbergs, Einum kennt — öðrum bent,
í 4000 eintökum. Af þessum bókum öllum hafa selzt á þessum árum nær 35.000
eintök. Mest hefur selzt af Ofvitanum, eða kringum 7000 eintök, en síðan koma
Ævisaga séra Arna og Bréf til Láru með um það bil 4000 eintaka sölu. Endur-
prentanir nokkurra bókanna eru í undirbúningi.
Má vera að einhverjum þeirra sem hafa áhuga á „íslenzkum bókmenntabú-
skap“ þyki þessar tölur fróðlegar, og því set ég þær hér um leið og ég er að
skilja við þessa útgáfu.
5'. D.
404