Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 102
Tímarit Máls og menningar Sigurðar Nordal fyrir kenningu hans um þróun sagnaritunarinnar frá sann- fræði til skáldskapar. í formála Egilssögu (1933) telur hann „almennt viðurkennt, að í öllum hinum eldri sögum sé meginefnið sótt í munnlegar frásögur“ og talar um „raunsæi hinna eldri sagna“ eins og sjálfsagðan hlut. Því meir sem saga byggir á slíkum heimildum og því minna sem skrásetjarinn vinnur úr þeim því áreiðanlegri á hún að vera. Nú vísa sögur oft til munnmæla, t. d. með orðum eins og „það er sögn manna“ eða „svo er sagt“. Þetta tekur Einar Ol. Sveinsson alvarlega þegar hinar eldri og „áreiðanlegri“ sögur eiga í hlut en komi slíkt fyrir í yngri og ósennilegri sögum giskar hann á að höfundur sé að stæla hina eldri sagnamenn. Þetta vitnar allt um hneigð til að setja einhvers konar jafnaðarmerki milli munnmæla og sannfræði, en sú „röksemd" elur aðra af sér: Sú saga sem ber engin merki munnmæla og fer í ýmsum atriðum í bága við sagn- fræðilegar staðreyndir gemr ekki haft munnmæli að undirstöðu og hlýmr að vera hugsmíð höfundar. Þessi álykmn er mjög varhugaverð og hefur að öllum líkindum leitt fræðimennskuna á villigötur því að menn hafa ekki haft nægilegt mið af þeirri staðreynd að hneigð munnmælasagnar- innar er breyting í epískan skáldskap. Af þessu leiðir að óheimilt er að líta á 300 ára gömul munnmæli sem sannsögulegan en ólistrænan efnivið. Jafnframt þessu skyldu menn hafa í huga að sköpun sagnanna var ekki ævinlega lokið þótt þær kæmust á bókfell, hún hélt áfram í uppskrift- unum þar sem menn breyttu bæði efni og orðfæri, orm vísur inn í o. s. frv. Af sumum merkusm sögunum eru til mismunandi gerðir sem virðast hafa myndast eftir að frumrimn þeirra átti sér stað. Innræting íslenska skólans að hver og ein saga væri „ein heild og verk eins höfundar“ verður ekki skilin frá þeirri aðferð við bókmenntarann- sóknir sem var ríkjandi við Háskóla Islands fram yfir miðja öldina, en aðalkrafa hennar var rannsókn höfundanna bæði bak við verkin og í þeim. Forsenda þeirrar aðferðar er auðvitað sú að höfundurinn sé kunnur en hér kom hún að litlum notum. Hin nýju viðhorf kölluðu vissulega á nýja rannsóknafræði (metodologi) en um hana hefur íslenski skólinn verið tóm- lámr. Framangreindar athugasemdir eru ekki gerðar í því skyni að varpa rýrð á störf þeirra manna sem helgað hafa krafta sína rannsóknum íslenskra fornsagna heldur til að benda á (raunar í alltof stuttu máli) að stefnumörk- un íslenska skólans og þeirra sem reynt hafa að framlengja brautir hans er ófullnægjandi fyrir þá sem vilja halda áfram að leita sannleikans um 320
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.