Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 99
Olnbogabörn skólans
Sálfræðilegrar ráðgjafar fyrir einstaklinga, börn og fjölskyldur er þörf.
En hún þarf aðeins að vera í réttu samhengi. Ef grautað er í slíkum málum
er verr af stað farið en heima setið. Ef sérfræðingar beita sálfræðilegum
aðferðum þar sem þær ekki eiga við er ég sammála Nils Christie í nýjustu
bók hans, „Som folk er flest“, um að sérfræðingar séu oft til bölvunar,
þeir hindri oft á tíðum framfarir.
Eg leyfi mér að efast um að sálfræðideildir skóla eigi að hafa með hönd-
um umfangsmikla einstaklingsráðgjöf eða fjölskyldumeðferð. Oft á tíðum
er mjög erfitt að vita hvað hlutur skólans í vandamáli nemandans er stór.
Þar af leiðandi er ekki víst að vandamál barns hyrfi úr skólanum þótt
barnið eða fjölskyldan fengi meðferð er reyndist henni jákvæð. Auk þess
neita margir foreldrar, sem eiga vandabörn í skóla, að nokkur vandkvæði
séu með börnin heima fyrir og segja að vandamálið sé skólans. Þetta reynist
ekki alltaf rétt þegar betur er að gáð. En margir foreldrar kæra sig ekki
um að blanda skólanum í einkamál sín. Ef menn eru ekki jákvæðir gagn-
vart ráðgjöf — meðferð — þá dugar hún skammt.
Sálfræðiþjónusta við skólana ætti að mínu mati að fást sem mest við
að hjálpa skólanum við að leysa sín eigin mál. Hins vegar ætti að setja
á stofn ráðgjafar- og þjónustustofnanir er hefðu með höndum almennt
geðverndarstarf.
Ráðgjöf fyrir kennara
Norski sálfræðingurinn Jossi Mordal heldur því fram að þau vandamál
sem kennarar eigi erfiðast með að takast á við í bekk séu aðstæður (atvik)
er varða mannleg samskipti eða þau félagslegu og sálfræðilegu atvik sem
koma upp í tengslum kennara og nemanda.
Eftir margra ára reynslu heldur Mordal því einnig fram að þekkingar-
leysi kennara á því er gerist í mannlegum samskiptum og æfingarleysi í
að fást við erfiðar félagslegar aðstæður sé mikilvægasta orsökin til að
kennarar biðji um aðstoð varðandi kennslu. Mordal skellir skuldinni á
kennaramenntunina, kennarar hafi lært að kenna hlýðnum, námfúsum
nemendum fög eins og kristinfræði, og það sé ekki svo erfitt. En kennarinn
hafi hins vegar bara sína eigin persónu til að reiða sig á þegar vandkvæði
koma upp í bekk, því að þau hefur hann ekkert lært um.
Alit Mordal á norskri kennaramennmn virðist ekki síður eiga við á
íslandi. Kennarar virðast fyrst og fremst eiga að miðla þekkingu (fræðslu-
429