Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Page 16
Tímarit Máls og menningar
safninu og stafsetningu og það nær auðvitað ekki nokkurri átt að vega slíkar
útgáfur á sömu vogarskál og textafræðilegar útgáfur og meta þær einvörðungu
eftir því hvort þær eru mikilvægt skref á eilífri vegferð textafræðinnar.
Dómararnir þrír minnast allir á mismunandi útgáfuform: þær tvær leiðir sem
vikið er að hér að ofan og þriðju leiðina sem kenna má við bókaflokkinn ís-
lenzk fornrit (IF), það sem EMJ kallar „menntamannaútgáfu“. Raunar virðist
hann eitthvað hafa misskilið afstöðu okkar og stefnu; hann gefur útgáfu Svarts
á hvítu (Sáh) þetta virðingarheiti vegna þess að með henni fylgi kort, ættartölur
og orðskýringar í skýringarkverum. Skýringarkverin fylgja ekki heildarútgáfu
sagnanna eins og að framan sagði heldur eru þau ætluð framhaldsskólanemend-
um. Það er því á röngum forsendum sem EMJ kallar útgáfu Sáh „mennta-
mannaútgáfu".
Raunar er samanburður á útgáfum okkar og bókum IF byggður á misskiln-
ingi. Það sem einkum skilur á milli er stafsetning og skýringar; síður meðferð
texta enda þótt við höfum víðar leitast við að fylgja náið aðalhandriti sagna en
þar er gert og að sama skapi leiðrétt textann minna. Og hafa ber í huga að elsta
útgáfa IF er frá árinu 1933, á þeim áratugum sem síðan hafa liðið hafa margar
sögur komið út í nýjum og traustari útgáfum, og það höfum við vitaskuld fært
okkur í nyt eins og vikið er að hér á eftir. I IF eru textarnir prentaðir á „sam-
ræmdri stafsetningu fornri“, fylgt úr hlaði með ítarlegum formála sem einkum
gerir grein fyrir handritum, heimildanotkun, tímatali, ritunartíma og -stað og
neðanmáls eru skýringar sem framar öðru gera grein fyrir sögupersónum, stað-
háttum, torráðnum orðum og fáeinum lesháttum úr handritum. Slíkt skýring-
arefni fylgir ekki útgáfu Sáh, enda erum við ekki sannfærð um að allur sá fróð-
leikur nýtist almennum lesendum. Við fylgdum útgáfunni úr hlaði með inn-
gangi þar sem gerð er grein fyrir nokkrum helstu einkennum Islendinga sagna,
fjallað um samfélag, ætt, meðferð deilumála og annað það sem við töldum að
greitt gæti götu áhugasamra lesenda. I þriðja bindi útgáfunnar er jafnframt vísir
að atriðaskrá sagnanna. Þessi útgáfa er með öðrum orðum lestrarútgáfa handa
fróðleiksfúsum lesendum allra stétta, og gegnir uppeldislegu hlutverki - líka
fyrir menntamenn; það geta allir lesið þessar bókmenntir vandræðalaust sér til
gagns og ánægju, ekkert eitt lestrarlag er öðru réttara. Utgáfan átti að vera allra
eign, helst lesin af öllum. Hún er líka þannig úr garði gerð að enginn þurfi að
fælast hana sökum yfirþyrmandi neðanmálsgreina eða tyrfinna formála þar sem
hætt er við að lærdómurinn skyggi á skynsemina.
Textafræðin
Vísindahyggja 19. aldar mótaði aðferðir textafræði nútímans. Hún er ekki,
fremur en önnur vísindi, hlutlæg nema að nokkru leyti. Rök hennar um stofn-
rit sem skilgetinn afkomanda frumgerðar höfundar byggjast á skynsamlegu en
huglxgu mati leshátta í öllum þekktum handritum. Þó að stofnritið megi finna
142