Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Page 19
Adrepur Laxdæla sögu, Grettis sögu, Ljósvetninga sögu, Víga-Glúms sögu og Hrafnkels sögu, svo nokkrar þekktar séu nefndar. Og er það ekki vansalaust þjóð sem stærir sig af því að eiga eldri og betri bókmenntir en grannar hennar í austri og vestri. Um stafróf og landafræði Ahugasamir lesendur Islendinga sagna þurfa ekki að lesa margar sögur til að gera sér grein fyrir að þær eru býsna ólíkar að efni, frásagnarhætti og stíl enda þótt sögusvið og sögutími sé svipaður. Sögurnar eru enda um 40 talsins og færðar í letur á löngum tíma, ef til vill nokkrum öldum, og íhaldssöm hefðin megnar ekki að bægja frá hverju nýmæli; halda árunni hreinni. Þeim sem gefur þessar sögur út í heildarútgáfu er því nokkur vandi á hönd- um jafnvel þó hann reyni ekki að endurflokka forníslenskar bókmenntir í lausu máli; hvernig á að raða? EMJ eyðir svo miklu rúmi í þessa mikilsverðu spurn- ingu og honum er svo skapþungt að ætla mætti að framtíð þessara bókmennta væri í húfi. Það er því lágmarkskurteisi að taka áhyggjur hans alvarlega og ræða nokkuð um þessi mál. Á að reyna að flokka saman þær sögur sem gerast á svipuðum slóðum með líkum hætti og gert er í ÍF? Varpar það ljósi á Brennu-Njáls sögu að hafa Gunnars sögu Keldugnúpsfífls til hliðsjónar, eða jafnvel Flóamanna sögu? Fá lesendur Víglundar sögu nýja sýn á efni hennar og stefnu ef þeir lesa Bárðar sögu Snæfellsáss og Eyrbyggju? Hvar á að setja Heiðarvíga sögu, Grettis sögu og Brennu-Njáls sögu niður? Hvernig á að raða Islendinga þáttum? Ef sögum væri ekki raðað eftir landsfjórðungum líkt og þegar landnám er rakið í Landnámabók, mætti hugsa sér að raða þeim saman eftir efni og form- gerð, flokka þær bókmenntalega og gefa hverjum sagnahópi auðkenni: skálda- saga, gamansaga, héraðssaga, ættarsaga, útilegumannasaga, ævintýrasaga, ástar- saga, o.s.frv. Þetta væri að mörgu leyti vænleg leið en hefur þó þann ókost að erfitt yrði að hemja sumar sögur í einum flokki: hvar eiga t.d. Víglundar saga, Egils saga, Bandamanna saga og Gunnars saga Keldugnúpsfífls heima? Og það er ekki líklegt að menn yrðu á einu máli um flokkun sem þessa, jafnvel þó kall- að væri saman kirkjuþing í fræðunum og EMJ kosinn fundarstjóri samkom- unnar. Við fórum þá leið að raða sögunum eftir stafrófsröð heita. Lesandinn er óbundinn; hann getur lesið þessar sögur í stafrófsröð eða látið kylfu ráða kasti og lesið þá sögu sem fyrir honum verður þegar hann opnar bókina; hann getur gluggað í þær sögur sem gerast á svipuðum slóðum og stuðst við kortin sem fylgja upplýsingum um texta hverrar sögu og sýna sögusvið hennar eða haft fyrir framan sig Sagnakortið (EMJ minnist ekki á þessi kort enda hentar það honum ekki í krossferðinni gegn stafrófinu); hann getur lesið sögurnar í sam- ræmi við hugmyndir sínar um skyldleika sagna og lesið saman fyrstu söguna og þá síðustu í safninu - og þannig mætti lengi telja. Tmm II 145
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.