Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Page 35

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Page 35
„ Tíminn “ í listaverkinu Þetta sprettur af því, að á meðan listamaðurinn býr til verk sitt íhugar hann ósjálfrátt og ómeðvitað, hvernig lund hans er á litinn meðan hann er að semja, en auk þess skynjar hann tíðni hvatanna sem liggja til grundvallar listaverkinu og gera skapgerð hans hæfa til að starfa og semja listaverk. Við þetta uppgötvar hann sálargerð persónuleika síns og getur stjórnað henni að miklu leyti með eins konar valdi sem hann hefur yfir sigurverki sínu: tímaskyninu og innbyggðu klukkunni sem tifar meðan hann vinnur. Tíminn í listaverkinu verður til vegna áhrifa ljóssins á efnið, þeirrar innri birtu sem breytir sveimi hugmyndanna - innra tuldri listamannsins eða „moði“ - í ákveðið efni sem er borið fram af hugsun, annað hvort af meg- inhugsun eða öðrum sem svipar oft til einskonar klasa víðsvegar í kringum „söguþráðinn" eða stikilinn sem þeir hanga á. En einnig getur ytri birta vakið tímann, birtan frá samfélaginu, mönnum, hlutum og ríkjandi tíðar- anda eða sögulegum tíma. Þegar ljósið „verður“ eins og sagt er frá í Biblí- unni, með því að sköpunarviljanum er beitt í þeim tilgangi að búa til eitt- hvað ákveðið: heiminn, mennina, tónverk eða annað, þá verður liturinn sjáanlegur og hreyfingin fer af stað. Þetta getur orðið beinlínis í málverki, með því að pensillinn hreyfist og raðar litunum í form eða „formleysu“ á flötinn og í skáldsögunni með hreyfingu persóna og atburða eftir sögu- þræðinum, hvort sem hann er heillegur, rofinn eða í klösum. I tónlist gefur þessi hreyfing frá sér hljóð. Yfirleitt er tíminn í listaverkinu marglitur. Þótt málverk sem er aðeins í einum lit sé formrænt séð og hvað tímann innan þess áhrærir statt í eilífð og á guðlegu stigi, þess eina og sanna, og áhorfandinn eða njótandinn geng- ur annað hvort inn í það samþykkur eðli þess eða hafnar því, þá gerir tími þess það marglitt, enda er enginn litur í því með réttu heill og óskiptur, hvorki efnafræðilega séð né með augunum, ef lengi er horft. I einum lit er engin hreyfing, önnur en sú sem vaknar í huga áhorf- andans. Hér er átt við lit sem er blæbrigðalaus og jöfn birta skín á. Engu að síður er „einlitt" listaverk flekkótt eða í brotum, myndflöturinn er brotinn tími með ótalmörgum formum í ýmsum litum. Þar af leiðandi hreyfast þau sjálfkrafa innan tíma síns, með ýmsu móti eftir því hve lengi er horft á það eða hlustað. Ef svo nefndur „sögulegur tími“ listaverksins (sé það unnið eftir lögmál- um ákveðinnar stefnu eða ríkjandi tíðaranda) fer saman við innsta tíma þess, vísar það eðlilega frá sér, jafnt til fortíðar, samu'ðar og væntanlegrar framtíðar. Þetta fer eftir því hve listaverkið er auðugt og yfirgripsmikið. Það er ekki til nein haldbær skýring á því, hvað það er í raun og veru sem við köllum „listaverk". Sumir vilja líklega halda því fram að það eitt sé listaverk sem einhver „kunnáttumaður“ kallar listaverk, hvernig svo sem Tmm iii 161
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.