Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 54

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 54
orðlengja það að hetjumar vösku sem voru nýbúnar að vinna þetta afreksverk tvístruðust í allar áttir á undraskömmum tíma. Síðast þegar ég leit um öxl sá ég hvar skólastjórinn og Dúddi voru að stumra yfir Dunda og svo byrjuðu þeir allir þrír að ausa möl á eldinn. Það urðu auðvitað eftirmál. Gvendur landi var sagður hafa tryllst alveg gjörsam- lega. Málið kom víst marflatt upp á karlugluna. Það kom í ljós að hann hafði staðið í þeirri meiningu að ofsóknimar gegn fjölskyldunni, áskriftimar, smurða brauðið, mykjan, steypan og öll þau ósköp væru runnin undan rifjum geðsjúks manns sem farið hafði halloka fyrir Gvendi við stjómarkjör í Ferðafélaginu. Bréf vom nú skrifuð til foreldra allra í bekknum. En við það sat. Enginn var ásakaður öðmm fremur, sem þýddi það eitt að Dundi hafði þrátt fyrir allt ekki bent á mig sem hinn seka. Ég hef satt að segja aldrei skilið hvers vegna. En ég var nú ekki að velta því lengi fyrir mér, enda fékk ég brátt um nóg annað að hugsa. Það var ekki löngu síðar að ég varð fyrir þeirri hremmingu að missa báða foreldra mína í bílslysi og varð eftir það að flytja heim til eldri bróður míns sem þá þegar var allur á kafí í braski og ekki lengi að sóa auðæfum foreldra okkar. Fyrr en varði var hið glæsta fyrirtæki E. Kaaresen og Kjögx hf. ekki orðið annað en gleymdur smáleturskafli í verslunarsögu landsins. Þessi áföll urðu til þess að ég missti fótfestuna í lífinu, það komst los á mig og drykkjuferillinn hófst í kjölfarið. Fjölskylda Gvendar landa fluttist blessunarlega norður til Akureyrar einhvemtíma þama um sumarið og spurðist ekki til hennar síðan. Dundi varð sem betur fer aldrei á vegi mínum eftir þetta. Alltaf öðm hverju varð mér þó hugsað til hans, með vaxandi samviskubiti. Ég velti því stundum fyrir mér hvað orðið hefði um hann. Fann gúmmflykt og heyrði vein. Ég fór satt að segja fljótlega að átta mig á því hve framkoma okkar við veslings drenginn hafði verið lítilmótleg. Ég þóttist viss um að ég hefði lagt líf hans í rúst. En ég segi svo sem ekki að ég hafí verið volandi yfir því á hverjum degi. *** Guðmundur Öm Guðmundsson skólameistari, áður Dundi landa, lauk máli sínu. Til allrar hamingju settist hann síðan í sæti sem var alveg á hinum enda fremsta bekkjarins. Þetta gat auðvitað verið merki um að hann hefði engu gleymt, það voru auðir stólar á mínum enda, en ég var samt dauðfeginn því að þurfa ekki að heilsa honum strax. Ég notaði tímann til að hugsa minn gang meðan næstu atriði voru flutt, leikþáttur um áfengismál, sem nemendur höfðu samið og stutt myndband um sama efni. Fyrst 52 TMM 1990:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.