Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 56
mikilmennskubrjálæði? Það var ekki gott að segja, en í hefndarhug var hann, það var auðfundið. Einhverju varð ég auðvitað að svara og setti bara fram einhverjar almennar hugleiðingar um að hreinskilnin yrði auðvitað að fara eftir því hve mikilvæg þau sannindi væru sem þagað væri um eða ekki. Það ætti auðvitað ekki að fara að ýfa hverja smáskrámu bara til þess eins að fá fram einhvem „sannleik“ sem engu máli skipti lengur og gæti jafnvel verið skaðlegur. En allt sem maður hefði þurft að byrgja inni í sér með valdi yrði að koma fram. Allt sem væri beinlínis spuming um líf eða dauða. Sem betur fer var eins og sljákkaði í Guðmundi við þetta. Ég var viss um að hann hefði skilið pilluna, að ég hefði kannski einhvemtíma upplifað eitthvað eftirminni- legra en kynni mín af honum. En ég fann að ég var orðinn mjög óstyrkur og vissi ekki hvaða stefnu okkar viðræður kynnu að taka á eftir. Með þessu lauk dagskránni. Formaður Skólafélagsins hélt stutt ávarp og þakkaði þátttakendum. Stundin var þar með runnin upp. Það var komið að lokauppgjörinu milli okkar Dunda. Ég ákvað að best væri að ljúka þessu af, hver svo sem útkoman yrði. Ég stóð upp og gekk beint af augum í áttina að sæti hans. En Dundi hafði greinilega hugsað sér það sama, það lá við að við lentum í árekstri á miðri leið, beint fyrir framan pontuna. Við tókumst í hendur og þögðum um stund. — Kondu sæll, Sigurður Kjögx, sagði Dundi. Hann virtist vera einn af þeim sem tönnlast svona í sífellu á nafninu manns, hafði greinilega farið á nokkur Camegie- námskeið um ævina. Það er langt síðan við höfum sést, Sigurður, hélt hann áfram. Mér til nokkurrar furðu vottaði ekki fyrir beiskju í röddinni, frekar var eins og hann virtist óstyrkur sjálfur. — Já, sagði ég, sem betur fer mundirðu kannski segja. Við eigum kannski eitthvað ofurlítið vantalað. — Eitthvað ofurlítið, Sigurður? Við skulum koma inn til mín, Sigurður, sagði Dundi. Hann var grafalvarlegur. Og gott ef hann var ekki orðinn náfölur. Ég hafði verið að vona að einmitt þama gripi hann tækifærið og kæmi með setninguna sína um þroska og vanþroska og bamaskap, um að hann þekkti nú unglinga og svo framvegis og síðan gætum við báðir hlegið og farið inn á kennarastofu að fá okkur kaffi. Tveir fullorðnir menn. En því var sko ekki að heilsa. Hann ætlaði greinilega að fá sem allra mest út úr þessu. Það var aldeilis að maðurinn ætlaði að dramatísera þessi bemskubrek mín. Því hvað hafði þetta verið annað, ef öllum moðreyk var blásið á brott? Fyrst hann hafði 54 TMM 1990:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.