Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 79
var ekki fyrr en við komum í skarkalann niður á Narodní Trída sem hann sagði mér að R. vildi hitta mig og að vinur hans, sem ég þekkti ekki, ætlaði að lána okkur íbúð sína í úthverfi borgarinnar undir þennan leynifund. Daginn eftir fór ég langa ferð með sporvagni út í úthverfi Prag. Þetta var í desember, ég var loppinn á höndunum og svefnbæimir vom algerlega mannlausir á þessum tíma dags. Ég fann húsið sem hafði verið lýst fyrir mér, tók lyftu upp á þriðju hæð, leit á nafnspjöldin á dyrunum og hringdi bjöllunni. Þögn ríkti í íbúðinni. Ég hringdi aftur, en enginn opnaði. Ég fór aftur út á götu. Fékk mér hálftíma gönguferð í fimbulkulda í þeirri von að R. hefði seinkað og að ég myndi mæta henni á mannauðri gangstéttinni á leiðinni út á stoppistöð sporvagnanna. En þar var ekki nokkur sála. Ég tók aftur lyftuna upp á þriðju hæð. Hringdi aftur dyrabjöllunni. Að nokkmm sekúndum liðnum heyrði ég að sturtað var niður inni í íbúðinni. Þá var sem einhver kæmi ísmola örvæntingarinnar fyrir innra með mér. Ég skynjaði hræðslu ungu konunnar sem gat ekki opnað fyrir mér því hún var svo kvíðin að innyflin í henni fóm öll úr skorðum. Hún opnaði fyrir mér, hún var föl, en brosti og reyndi að vera jafn vingjamleg og venjulega. Hún reyndi að slá á léttari strengi og segja að loks væri komið að því að við gætum verið ein saman í annars mannlausri íbúð. Við fengum okkur sæti og hún sagði mér að hún hefði nýlega fengið boð um að koma á lögreglustöðina. Þeir höfðu yfirheyrt hana heilan dag. Fyrstu tvo tímana spurðu þeir hana um ýmislegt sem ekki skipti máli, henni fannst sem hún hefði töglin og hagldimar, hún gantaðist við þá, og hún spurði þá djarflega hvort þeir héldu að hún ætlaði að sleppa hádegismat fyrir svona sparðatíning. Þá spurðu þeir hana: kæra ungfrú R., hver er það eiginlega sem skrifar stjömuspána í blaðið þitt? Hún roðnaði og reyndi að minnast á frægan eðlisfræðing sem hún gat ekki nafngreint. Þeir spurðu hana: þekkir þú Kundera? Hún sagðist kannast við mig. Var eitthvað athugavert við það? Þeir svömðu: það var svo sem ekkert við það að athuga, en vissi hún að Kundera væri áhugamaður um stjömuspeki? Hún kvaðst ekki vita það. Veistu það ekki? Nú voru þeir orðnir háðskir. Þetta er altalað í Prag og þú veist ekkert af því? Hún hélt stundarkom áfram að tala um kjameðlisfræðinginn, og ein löggan öskraði á hana: það er eins gott fyrir þig að játa allt! Hún hafði sagt þeim allt af létta. Ritstjóm blaðsins langaði til að vera með vandaða stjömuspá en vissi ekki hvert hún átti að snúa sér, R. þekkti mig og hafði því leitað til mín. Hún var viss um að hún hafði ekki brotið nein tékknesk lög. Þeir tóku undir það. Nei, hún hafði ekki brotið nein lög. Hún hafði einungis gerst brotleg við starfsreglur sem banna samstarf við ákveðna einstaklinga sem höfðu bmgðist trausti Flokks og Ríkis. Hún benti á að í þessu tilfelli hafði ekkert alvarlegt gerst. Nafn Kundera var falið bak við dulnefni og gat því ekki skaðað neinn. Og greiðslumar sem Kundera hafði fengið fyrir vom ekkert sem orð var á gerandi. Þeir tóku líka undir það. Rétt var það, ekkert alvarlegt hafði átt sér stað, þeir ætluðu að láta sér nægja að ganga frá skýrslu um málið, hún myndi skrifa undir hana og síðan þyrfti hún ekki að hafa neinar áhyggjur. TMM 1990:3 77
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.