Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 80

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 80
Hún hafði skrifað undir skýrsluna og tveimur dögum síðar hafði ritstjórinn kallað hana inn á skrifstofu til sín og sagt henni að hún væri rekin á stundinni. Sama dag fór hún upp á útvarpið þar sem hún átti vini sem höfðu fyrir löngu boðið henni vinnu þar. Þeir heilsuðu henni fagnandi, en þegar hún kom daginn eftir til að ganga frá samningi, var starfs- mannastjórinn, sem kunni vel við hana, alveg miður sín. „Hvað varstu eiginlega að gera! Þú ert búin að eyðileggja líf þitt. Ég get ekkert gert fyrir þig.“ Hún var fyrst á báðum áttum hvort hún ætti að tala við mig, því hún þurfti að lofa lögreglunni að segja engum neitt um yfirheyrsluna. En þegar hún fékk aðra kvaðningu frá lögreglunni (hún átti að mæta þar daginn eftir), ákvað hún að vissara væri að hitta mig á laun til skrafs og ráðagerða og koma í veg fyrir að við kæmum með sitt hvora útgáfuna ef ég myndi líka vera kallaður til yfirheyrslu. Áttið ykkur á því að R. var engin gunga, hún var bara ung og óreynd. Hún var að fá fyrsta áfallið, óskiljanlegt og óvænt, og hún myndi aldrei gleyma því. Ég gerði mér ljóst að ég hafði verið valinn til þess að vera ógnvaldur og refsivöndur á fólk og mér fór að standa stuggur af sjálfum mér... „Heldur þú,“ spurði hún með öndina í hálsinum, „að þeir viti um þúsund krónumar sem þú fékkst fyrir stjömuspána?“ „Hafðu engar áhyggjur af því. Gaur sem hefur lesið marx-lenínisma í Moskvu í þrjú ár þorir aldrei að játa að hann hafi látið einhvem plokka sig fyrir stjömuspár.“ Hún hló og enda þótt þessi hlátur hafi aðeins varað tæplega hálfa sekúndu, hljómaði hláturinn í eyrum mínum eins og varfærið loforð um sáluhjálp. Því það var einmitt svona hlátur sem ég þráði þegar ég var að skrifa allar heimskulegu greinamar um Fiskana, Meyjuna og Hrútinn, ég óskaði mér einmitt svona hláturs, en ég heyrði hann hvergi vegna þess að í millitíðinni höfðu englamir alls staðar komist í áhrifastöður, herráð, þeir höfðu sölsað undir sig vinstrið og hægrið, Araba og Gyðinga, rússneska herforingja og rússneska útlaga. Þeir horfðu kuldalega á okkur úr öllum áttum og þetta augnaráð tætti utan af okkur notalega ærslafullan felubúninginn og breytti okkur í fláráð afstyrmi sem unnu fyrir tímarit sósíalískrar æsku, en trúðu hvorki á sósíalisma né æsku, gerðu stjömuspá handa ritstjóranum, en gáfu bæði skít í ritstjórann og stjömuspána hans, voru að sýsla við fánýta hluti meðan allir í kringum okkur (hægri- og vinstrimenn, Arabar og Gyðingar, her- foringjar og útlagar) börðust fyrir framtíð mannkynsins. Við fundum hvemig augnaráð þeirra hvíldi þungt á okkur og breytti okkur í skorkvikindi sem réttast væri að kremja undir hæl sér. Mér tókst að hemja örvæntinguna og reyndi að úthugsa nothæfa áætlun handa R. sem hún gæti játað fyrir lögreglunni daginn eftir. Meðan á samtali okkar stóð, hafði hún nokkmm sinnum staðið upp til að skreppa á klósettið. Hún sneri alltaf til baka við undirleik vatnskassans á klósettinu, stíf og vandræðaleg á svipinn. Þessi hugrakka stúlka skamm- 78 TMM 1990:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.