Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 93
Ritdómar Leitin aö upprunanum Sturlunga saga I—III. Ritstjóri: Ömólfur Thorsson. Svart á hvítu 1988. Bindi I—II: Sturlunga saga. Áma saga biskups. Hrafns saga Sveinbjamarsonar hin sérstaka. 937 bls. Bindi III: Skýringar og fræði. Inngangur. Islendingabók. Veraldar saga. Leiðar- vísir Nikulás Bergssonar. Nafnaskrá. Staðamafna- skrá. CXXXVI+523 bls. Ekki er ofmælt að segja að í þeirri útgáfu Sturl- unga sögu sem nú hefur séð dagsins Ijós á vegum Svarts á hvítu birtist lesendum alveg nýr Sturlungutexti. Hingað til hefur almenningur einkum átt þess kost að kynnast þessum mikla sagnabálki í Reykjavíkurútgáfunni svokölluðu, sem Jón Jóhannesson, Kristján Eldjám og Magnús Finnbogason sáu um árið 1946 en hef- ur verið enduiprentuð síðan og þykir sérlega vönduð. En þessar tvær útgáfur eru byggðar á svo gerólíkum forsendum, að erfitt er að bera þær saman sem slíkar eða jafnvel segja að nýja útgáfan geti beinlínis „komið í staðinn fyrir“ hina fyrri: að þessu leyti stendur hvor um sig sjálfstætt. Þessar ólíku forsendur sem útgef- endur hafa fylgt em hins vegar allrar athygli verðar og er reyndar nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þeim ef menn vilja meta útgáfu Svarts á hvítu að verðleikum. Það er engin tilviljun að útgefendur Sturlungu skuli hafa fylgt mismunandi stefnum, því öll gerð og varðveisla þessa umfangsmikla texta er með þeim hætti að því fylgja flókin og torleyst vandamál að búa hann í hendur lesenda. Eins og venjulega er sagt, er Sturlunga saga „sam- steypa" eða „safnrit", þótt það orð sé reyndar margrætt: um 1300 tók einhver „ritstjóri“ (e.t.v. Þórður Narfason lögmaður á Skarði) sér fyrir hendur að steypa níu sjálfstæðum ritum um atburði 12. og 13. aldar, sem nú em öll glötuð í upphaflegri mynd nema Hrafns saga ein, saman í einn samfelldan texta, þar sem saga þessa tímabils væri rakin nokkum veginn í réttri tíma- röð eftir því sem við var komið. Einhvem tíma á fyrri hluta 14. aldar var þessi „eldri gerð“ sögunnar — sem ekki var farið að kalla „Sturl- unga sögu“ fyrr en löngu síðar — svo aukin til muna. Gerðir Sturlungu og eldri útgáfur í byrjun 17. aldar var hvor gerðin um sig varðveitt í einni skinnbók, sem kallaðar hafa verið Króksfjarðarbók og Reykjarfjarðarbók. Þær vom báðar skrifaðar um eða eftir miðbik 14. aldar, en þó er ekki hægt að leggja þær að jöfnu: Reykjarfjarðarbók virðist hafa verið mjög gott eintak yngri gerðarinnar (jafnvel frumrit hennar að sumra áliti), en í Króksfjarð- arbók var texti eldri gerðarinnar sums staðar styttur og jafnvel afbakaður, þannig að nauð- synlegt getur verið að leiðrétta hann eftir Reykj- arfjarðarbók. Tímans tönn hefur síðan leikið þessar skinnbækur grátt og hafa allmörg blöð glatast úr Króksfjarðarbók en Reykjarfjarðar- TMM 1990:3 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.