Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 38
Benedikt Jónsson á Auönum.
með áskorun um að leiða fullkomið trúar-
"3
bragðafrelsi í lög. Til áhrifa frá Einari rek-
ur Amór Sigurjónsson þau viðhorf er síðar
urðu ríkjandi í héraðinu um aldamótin:
En norður íÞingeyjarsýslu reis mikil alda
trúarlegra efasemda. Menn hættu að sækja
tíðir til sinna lútersku presta, vanræktu
sakramenti, hættu jafnvel að skíra böm sín
og ferma. Sú saga verður ekki rakin hér,
enda þarf víða að leita til að finna öll upptök
hennar og fylgja öllum hennar straumum.
En af því, sem hér á undan hefur verið sagt,
má auðveldlega ráða, að Einar í Nesi átti þó
nokkum þátt í því að vekja þessa öldu, og
þeir, sem báru hana síðar uppi, sóttu margt
til hans bæði beinlínis og óbeinlínis.4
Flest bendir til þess að Benedikt hafi alist
upp við meira frjálslyndi í trúarefnum en
algengt var á þeim ámm. Þannig segir Am-
ór Sigurjónsson um sálusorgara hans:
Vinsælasti presturinn í austursveitum Suð-
ursýslunnar, Magnús Jónsson á Grenjaðar-
stað, var og frjálslyndur maður í trúar-
efnum, jafnvel svo, að sumum þótti háski
standa af.5
36
TMM 1991:4