Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 14

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 14
Þótt Einari þyki til um náttúrleika kveð- skapar Huldu, þá finnst honum greinilega skorta á að hún beini skáldskaparhæfileik- um sínum að verðugu viðfangsefni, sumsé hinum æðri veruleika. Einræður Starkaðar er auðvitað kvæði sem eiginlega er einboðið að lesa þannig að ljóðmælandi sé Einar sjálfur, þótt taka beri fram að huglægni Einars sé ekki ævinlega þess eðlis. I Einræðunum segir hann: „Ei- lífðin sjálf, hún er alein til / vor eiginn tími er villa og draumur“ og það er einmitt þessi mikilvæga staðreynd sem hann vill að Hulda átti sig á og gefi sig alla á vald. Það fer heldur ekkert á milli mála að hann telur sjálfan sig hafa náð þessu marki, því í loka- erindinu biður hann hana að koma fljótt yfír brúna — væntanlega til sín. Auðvitað er nærtækt að tengja þennan æðri veruleika handan sólarinnar við guðs- ríki, fyrirheitna landið. í raun og veru er vandi Einars þegar allt kemur til alls hinn sami og flestra annarra rómantískra skálda: að fella saman vísindi og guðstrú. Þar togast á tveir sterkustu þættimir í hugmyndaheimi hans: Annars vegar óbifandi trú á þekking- arviðleitni mannsins og að hann sé þess megnugur að greina kjama hlutanna og svo hins vegar einlæg trú á guð sem upphaf alls. Annars vegar er það tilfinningin fyrir aukn- um styrk einstaklingsins í veröidinni, til- finning sem var vakin af rómantíkinni, og svo hins vegar ákveðin vanmáttur sem fylg- ir guðstrúnni, að mönnunum séu takmörk sett. Þetta kemur t.d. vel fram í kvæðinu Sunna: Sá guð sem skóp oss ábyrgð vits og vilja, hann virðir trúar þor, að sanna og skilja. Vér, sandkom stjörnuhafs, í litlu hverfi, oss heimtum ljós að svipta dul og gervi. Vor andi, er vóg og mældi himinhjólin, á hæðum varir, þegar slokknar sólin. í eilífð drekkur sál vor Sunnu erfi.14 Ég hef hér lagt höfuðáherslu á að tengja hugmyndir Einars við hinn þýska róman- tíska skóla, en frekar dregið úr tengslum hans við nýrómantík, enda er það skoðun mín að það sé síst færra sem bindi hann við rómantík. Sé kveðskapur Einars borinn að ljóðum nýrómantísku skáldanna, (Jóhanns Sigurjónssonar o.fl.), er hann í fyrsta Iagi miklu jarðbundnari í öllum meginviðhorf- um sínum og bóhemhugsjónin um að lifa á líðandi stund er honum mjög fjarlæg, a.m.k. í kvæðunum í heild. Einar er sífellt í kvæð- um sínum að hugsa um framtíðina og bend- ir m.a.s. á ýmsar hagnýtar leiðir til Iausnar á ákveðnum vandamálum, sem var vægast sagt fágætt í nýrómantískum kveðskap. Guðstrúin er líka miklu sterkari þáttur hjá Einari en nýrómantíkerum og fyrr hef ég rætt um tengsl hans við ofurmennishug- myndir Nietzsches og að aðrar hugmyndir séu kannski nær Einari. Þá er allt ljóð- og myndmál kvæða hans afskaplega ólíkt þeim einfaldleika sem hin nýrómantísku skáld stefndu að. Þegar allt kemur til alls er Einar Bene- diktsson kannski skýrasta dæmi sem við eigum um kerfisbundið, síðrómantískt, heimspekilegt skáld sem neitar að segja skilið við sinn guðdóm en dregst óhjá- kvæmilega að vísindalegum uppgötvunum síns tíma og reynir að fella þetta allt saman. Af því spretta mótsagnimar. Þessi var og þróun og vandi Bjöms Gunnlaugssonar í höfuðdráttum, þótt togstreita Einars sé meiri sem síðari tíma manns. Eins og flest rómantísk skáld dreymdi hann um að fella þetta saman í eitt glæsilegt kerfi sem gengi upp og það er sú draumsýn sem býr að baki innblæstri hans og gerir hann sérstakan. 12 TMM 1991:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.