Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 42
að verja sig og sína skoðun, og út úr því ætti að verða „hríð er þeim svíði“ andlegu „njólastrokkunum“. Eg gat ekki stillt mig um að skrifa Jóh[annesi] nýlega og hvetja hann til vamar og sendi honum nokkur rit sem ég hafði ensk og ameríkönsk (Huxley, Watt, Ingersoll etc.) og vísaði honum á grein í Tilskueren í sept. í haust eftir dansk- an guðfrœðing, Birkedal, um hið kirkjulega ástand. Það mætti benda séra M[atthíasi] á, hvort það muni allt vera hálfmenntaðir aplakálfar sem tala um kirkjuna líkt og Jóh[annes]. Það eralltaf í mérglímuskjálfti síðan þessar ritgerðir komu út, því mér er stórilla við kirkjuna, hversu gömul sem hún er og æru verðug. Það er engin institution til jafn-demoraliserandi sem hún og drepandi fyrir alla andlega og líkamlega framtaks- semi, og enga bók þekki ég jafnskaðlega sem ritninguna ef hún er skoðuð sem trúbók og moralskur mælikvarði, því bæði er hún siðlaus og ólógisk og hlýtur því að sýkja andlega hvem þann sem trúir henni. Bótin er að þeir em fáir, en þá kemur yfirdreps- skapurinn, og hann er litlu betri.1- Þó að þær greinar, sem Benedikt birti um stjómmál og verslunarmál, væru einatt bomar uppi af siðferðilegri alvöm og með sterkum gmnntóni heimspekilegrar lífsaf- stöðu, er í rauninni ekki nema ein grein eftir hann sem beinlínis var innlegg í umræðu um trúmál, heimspeki eða lífsafstöðu. Þar réðst hann þá ekki heldur á garðinn þar sem hann var lægstur. Tildrögunum að ritun þeirrar greinar lýsir Benedikt í fyrsta bréf- inu sem hann skrifaði Þorsteini Erlingssyni 6. febr. 1897: Erindið var nú Iíka við ritstjóra „Bjarka" og krefst dálítils formála. í febrúamúmeri Kirkjublaðsins f.á. kom út ritgerð eftir Grím sál. Thomsen um bók Balfours um trúna. Þessi ritgerð átti víst að vera eins konar andlegur leiðari fyrir fólkið og við- vörun gegn því að hætta sér of langt út fyrir gmndvöll kirkjunnar, en var of heimspeki- leg til þess að almenningur hefði hennar nokkur not eða skildi hana. Hitt gat hvert barn skilið að allar hinar nýrri heimspeki- stefnur vom fyrirdæmdar og hörðum orð- um farið um ýmsa nafnkennda menn. Mér fannst strax að frjálst hugsandi menn mættu ekki þegja við þessari ritgerð, því þama kom mótspyma fram klædd í dularbúning heimspekilegra forma og hulin í moldryki vísindalegra orðatiltækja sem auðsjáanlega mundi fylla augu almennings. En verst voru þó ummælin um aðraeins menn og þá Spencer, Mill, Darwin og Huxley, þau hlutu að blekkja menn sem ekkert vissu um þá annað en það sem þama stóð í K[ir]kju- bl|aðinu]. — Auðvitað fann ég glöggt van- mátt minn til þess að bera blak af þessum mönnum, en ég þóttist líka vita að enginn mundi gera það eins og á daginn er komið. I apríl í fyrra reit ég því dálitla grein, og eftir ráðum vina minna og félaga, Jóns í Múla og Péturs Gauta, sendi ég hana Kirkjublaðinu og bað ritstjórann að senda mér blöðin til baka ef hann tæki ekki grein- ina sem ég alltaf bjóst við. Svo leið nú og beið, og ekki kom greinin og ekkert svar frá ritstjóranum. í haust skrifaði ég honum og bað hann að senda mér blöðin, því ég átti ekki rétta afskrift af þeim, og nú með seinasta pósti fékk ég þau loks, nær því útslitin eins og þér sjáið; hafa þau auðsjáanlega gengið manna á milli, enda finnst mér næstum eins og K[ir]kju- bl[aðið] hafi stundum verið að mótmæla þessari grein, eins og t.d. þar sem það flytur fáein orð þýdd eftir Spencer úr svari hans gegn Balfour svo þrælslega slitin út úr réttu sambandi að þau gefa lesendum K[ir]kju- bl[aðsins] í skyn, að Spencer treystist ekki lengur til að verja lífsskoðun sína eða standa við hana. Og enginn skiptir sér af þessu! Ekki þyrfti nema að þýða dálítið 40 TMM 1991:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.