Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 106

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 106
Hörður fáorðari þótt augljóst sé að honum þykir meira varið í andleg verðmæti og heilbrigði en í veraldleg verðmæti. Eg hefi búið erlendis sl. fjögur og hálft ár og oft verið spurður að því hvaða atvinnu Islend- ingar stundi. Svarið er að fleiri Islendingar starfa nú við þjónustu en við nokkuð annað. Mörgum vefst löng tunga um háls við að heyra þetta og skilja ekki hvemig það er hægt. Fólk vildi heyra um fisk eða kom, málma eða olíu. Kjarni málsins er hins vegar sá að umbúðir og auglýsingar, skólar og spítalar og stærri og stærri hús, bæði íbúðir og skrifstofur, umlykja líf okkar og höfum við vissulega enga sérstöðu í því efni í hinum vestræna heimi. Nýtt verðmætamat er nauðsynlegt Hörður ræðir um að við þurfum að losna úr netjum gervi- og sölumennsku og vitnar í því sambandi í kjörorðið „smátt er fagurt“ (bls. 148). Hann heldur því fram að hagvöxtur sé falskt hugtak af því að .hann mæli aukningu kostnaðar. T.d. reiknist kostnaður af slysum sem „verðmætasköpun“ í þjóðhagsreikningum og einnig reiknist kostnaður af auglýsingum sem hagvöxtur (bls. 57 og 60-61). Eg tek heils hugar undir það með Herði að þörf er á að staldra við og hugleiða hvað er nauðsynlegt og hvað ekki. Á það við um hvers konar vörur og þjónustu. Endalaus vöxtur virð- ist mér óhugsandi, a.m.k. þegar ég tek tillit til þess að hagvöxtur í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum á öldinni sem er að líða stafaði ekki síst af arðráni á Afríku og Suður-Ameríkulönd- um. Flestar orku- og hráefnislindir eru tæman- legar, þ.m.t. fiskurinn í sjónum, ef ekki erhugað vel að. Hörður notar líkinguna um „þjóðarkök- una“ sem hann telur nógu stóra og hratt bakaða. Hann segir að hana þurfi að gera hollari! (bls. 158). Og að mínum dómi er brýnna að skipta henni réttlátar en að stækka hana. Sérfræðingaveldi í umbúðaþjóðfélagi Annar rauður þráður í bókinni er umræða um sérfræðingaveldi sem Hörður heldur fram að hafi stóraukist í íslensku samfélagi á stuttum tíma. Flestir„sérfræðingar“ virðast undirþá sök seldir, hvort sem það eru læknar, verkfræðingar, tölvuráðunautar, fjölmiðlafólk, hönnuðir eða kennarar, að reyna að sveipa starf sitt „helgri dulúð“ og mörgum þessara hópa, að kennumm undanskildum, hefur orðið töluvert ágengt í því efni. Slík dulúð getur myndast af því að maður skilur ekki hvað sérfræðingamir gera enda gera margir meira úr „sérfræði" sinni en efni standa til. Oft byggist vald þeirra einmitt á því að of lítið er útskýrt fyrir okkur sem ekki erum sér- fræðingar á því sviði hverjar eru forsendur ályktana. Þannig eru sérfræðingar kannski alls ekki of margir en eiga til að fara ólýðræðislega að. Velferðarsamfélag nútímans hefur ekki ein- göngu leitt af sér lengri lífdaga þorra fólks, heldur og velferðarsjúkdóma af ýmsu tagi. Hörður hefur gert ítarlegar rannsóknir á heil- brigðisþjónustu og auknum kostnaði við þá þjónustu (sjá 5. og 6. kafla Umbúðaþjóðfélags- ins) og hefur áhyggjur af vaxandi fjölda sér- fræðinga og kostnaði við lyfjagjöf og rannsóknir og af ábyrgðarleysi almennings við að nota þá þjónustu sem í boði er. Margir sér- fræðingar hafa komið sér þannig fyrir að þeir hafa sjálfdæmi um hvað þeir gera og ekki tíðk- ast að sjúklingar gagnrýni lækna. Hörður telur að læknar séu orðnir of margir og þar af leiðandi hafi þeir byrjað á að framkvæma ýmsar aðgerð- ir, svo sem fegrunaraðgerðir og glasafrjóvganir, sem ekki vom talin eðlilegt viðfangsefni heil- brigðiskerfisins fyrir „ofvöxt" þess (bls. 113). Hörður bendir á við vitum yfirleitt ekki hvað tiltekin læknisrannsókn, t.d. rannsókn á blóð- sýni, kostar vegna þess að við borgum sama gjald, hver sem raunverulegur kostnaður við læknishjálpina er. Hann bendir á nauðsyn þess að við sem teljumst almenningur skiljum betur þetta kerfi og séum betur á verði gagnvart því 104 TMM 1991:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.