Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 112

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 112
Ekki þarf annað en bera saman við aðra fjalls- lýsingu til að sjá hver breyting er á orðin frá fyrri kveðskap Snorra: Flughamrabratt og rökkurdimmurautt rís það úr breiðum öldum laufgrænna hæða, löðri hvítra blóma og lágum móagárum. I eldra kvæðinu mælska, útleitni, formdýrkun, hljómdýrð; í hinu yngra er allt „óþarft“ skraut numið brott. Inntak þessara tveggja kvæða frá mismunandi tímum er ekki síður ólíkt, tákngildi fjallsins allt annað. I fyrra ljóðinu er það tákn upprunaleikans og andlegra verðmæta og jafn- framt vettvangur þrotlausrar baráttu í þágu lífs- ins. í hinu síðara birtist fjallið sem tákn skáldlegrar hugsjónar og fullkomnunar í vitund einfarans. Lauf og stjörnur, þriðja ljóðabók Snorra Hjartarsonar, fól í sér meiri breytingu en svo að allir aðdáendur skáldsins væru fullkom- lega sáttir við hana fyrst í stað. Það tók t.d. Kristin E. Andrésson heila tímaritsgrein að kveða sig í sátt við bókina þó að hann hrifist vissulega af ljóðunum, sá fagurkeri sem hann var. Páll Valsson hefur gert nýja heildarkönnun á verkum skáldsins og vill þar ekki gera of mikið úr þessari breytingu, heldur talar hann um að þriðja ljóðabókin marki „nokkur skil“ í skáld- skaparafstöðu Snorra. Hann segir þó í beinu framhaldi: Brýningartónninn sem komið hafði fram í lok fyrstu bókar og sett mjög svip sinn á hina næstu er svo til horfinn og hér er hvergi að ftnna ljóð sem fjalla á skorinorðan hátt um tilgang og markmið skáldskapar og nauðsyn þess að honum sé beitt í einhverri baráttu. Þessi þróun gerist þrátt fyrir að leiða megi sterk rök að því og það reyndar blasi við að sú barátta, sem Snorri hefur fyrst og fremst átt við, standi enn á þessum tíma af fullum þunga; nefnilega baráttan fyrir frelsi og full- veldi íslands og íslenskrar tungu (sic!). Með þessari bók tekur skáldskapur Snorra ein- faldlega aðra stefnu. (162) Orsök þeirrar breytingar er ekki sú að skáldið hafi skipt um skoðun, heldur hefur hann gert sér grein fyrir því að kvæði geti fáu breytt; „sá tími er liðinn sem ljóð geta haft snögg pólitísk áhrif1, eins og hann kemst sjálfur að orði í fyrmefndu viðtali. Það var þátttakan í baráttu líðandi stundar sem markaði á sínum tíma þessu innhverfa skáldi nýja stefnu eins og glöggt má sjá í annarri ljóðabókinni og lokakvæði þeirrar fyrstu sem vitnað var í hér að framan. Á hinum síðari vatnaskilum í skáldskap Snorra er ekki nóg með að yrkisefnin breytist heldur er bæði skáldskaparafstaða og skáldskaparaðferð tekin ti 1 róttæks endurmats. Ólafur Jónsson kemst svo að orði í ritdómi um Lauf og stjömur, sem reyndar er ekki talinn með í ritaskrá Páls Vals- sonar: Snorri Hjartarson hefur jafnan reynt á þanþol ljóðmáls síns, áður fyrr einatt í dýrum hátt- um, glitofnu rími, dýrri tilfinning; nú er eins og þolraunin gerist inn á við í ljóðunum, hvert orð fágað til hins ýtrasta, mál og tilfinn- ing skírð í deiglu ýtrustu einfeldni áður en það kemst á blað, hverju óþörfu orði, öllu skarti vísað á bug sem markleysu. (Alþýðu- blaðið, 21. des. 1966) Undirtitill bókar Páls er: Þróun og samfella í skáldskap Snorra Hjartarsonar, og hann leggur megináherslu á það sem sameinar bækumar fremur en það sem aðskilur þær. Og vissulega eiga ljóðin í síðari tveimurbókum Snorra mjög margt sameiginlegt með hinum fyrri. Þannig sýnir Páll fram á að táknheimur bókanna er að allmiklu leyti sameiginlegur (87 o.áfr.), sjálfri sér samkvæm er hin rómantíska náttúruafstaða Snorra (100 o.áfr.) og söm við sig tilhneiging hans að nota náttúruna til að endurspegla hug- arástand ljóðmælanda (59 o.áfr.). Einn getur því talað um „nokkur skil“ og annar um „rof‘ og báðir haft nokkuð til síns máls. Hins vegar orkar tvímælis þegar höfundur skiptir ádeilukvæðum í þjóðfélagsleg og tilvistarleg kvæði (165 o.áfr.) þar sem hin síðamefndu leysi hin fyrmefndu af hólmi. Það er allhæpið að telja lokaljóðið í Á 110 TMM 1991:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.