Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 36
Sveinn Skorri Höskuldsson
Öll var ævin sem ævintýri
Þáttur um Benedikt á Auðnum
í þessari grein, sem að stofni er lokakafli rits um Benedikt Jónson á
Auðnum, er brugðið Ijósi á trúarhugmyndir hans og lífsviðhorf og hvernig
þær skoðanir þróuðust í tímans rás. Benedikt var frjálslyndur í trúarefnum
og var „stórilla við kirkjuna" og taldi hana „demoraliserandi'1 — „enga bók
þekki ég jafnskaðlega sem ritninguna," segir hann í bréfi til Sigurðar í
Ystafelli. Þó var Benedikt trúaður á sína vísu og bjartsýnismaður sem fram
kom á síðustu æviárum hans. í greininni er stuðst við ýmis áður óbirt gögn.
Hver var hann? Hvemig var hann?
Ef sannleiksbrot býr í orðtakinu „Við
erum það sem við gerum,“ þá á það við um
Benedikt. Hann birtist í orðum sínum og
gerðum, og meðan hann var á dögum lifði
hann óvenju heill í þeim hugsjónum sem
bjuggu j^eim að baki.
Nú kann okkur að virðast að hugmyndir
á borð við sósíalisma, samvinnustefnu eða
georgisma séu næsta ópersónulegar og það
segi lítið um einn mann að kenna hann við
þær. Þetta var þó höfuðeinkenni Benedikts.
Hann var hugsjónamaður og öldungis sam-
lífur hugsjónum sínum. Hann lifði og
hrærðist í hugmyndum og var gæddur því
eðli æskumanns að vera forvitinn um nýj-
ungar til æviloka. Þó að okkur kunni að
virðast hugmyndir um eðli og skipan mann-
legs samfélags — þar með verslunarhátta
— ópersónulegar, voru þessar hugmyndir
hvað gildastur þáttur í fari Benedikts.
Vissulega kann okkur á stundum að þykja
hann einstrengingslegur, allt að því heiftúð-
ugur. Er það þó ekki einkenni manns sem
hefur öðlast sannfæringu, trúir á málstað
sinn og vill berjast fyrir honum?
Þó að ýmsar félagslegar hugmyndir í víð-
um skilningi einkenni persónuleika Bene-
dikts velti hann ekki síður fyrir sér
einkalegri spumingum um eðli og markmið
eigin tilvistar og allra manna. Raunar hvíla
pólitískar og félagslegar hugmyndir hans
að jafnaði á siðlegum og heimspekilegum
gmndvelli.
Hvemig var hann í hátt?
Um ytra útlit hans getur hver lesandi
dæmt af þeirri mynd sem hér birtist. Hann
var smávaxinn og nettur og hefur slík lík-
34
TMM 1991:4