Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 41

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 41
st[öðum], sem engar dulur draga lengur á það (að minnsta kosti í okkar hóp) að þeir eru orðnir fráhverfir dogmunum. I kyrrþey er nú líka allmikið talað um það hér að losa sig úr þjóðkirkjunni, og hafa menn helst hugsað sér það þannig, að þeir, sem því vildu sinna, gengju í eins konar unitariskan söfnuð til þess að fá sig viðurkennda og lausa úr öllum kirkjuböndum, gætu í slík- um söfnuði verið menn víðs vegar um allt héraðið, en þetta er ekki nema fyrstu ráða- gerðir. Samt eru þeir áhugamestu að hreyfa við þessu við fleiri og fleiri. — Hvað gerir kirkjustjómin við bændakirkjueiganda sem allt í einu segir við hann: „Nú ljæ ég ekki þjóðkirkjunni lengur hús mitt heldur brúka það handa utanþjóðkirkjusöfnuði.“ Er hægt að taka kirkjuna af bónda með valdi? — Eftir fráfall föður míns sál. er ég meðeig- andi Þverárkirkju, og vildum við eigendur gjaman gera eitthvað með hana, að minnsta kosti eftir það að stjúpa mín er lögst til hvfldar. Fleiri bændakirkjueigendur hér hugsa líkt, t.d. Haraldur á Einarsstöðum, sem er einn ákafasti anti-kirkjumaður hér. Þverárkirkja skuldar okkur nær 2000 kr. síðan hún var byggð úr steini 1878 og borg- ar ekki skuld sína á mannsaldri. Við buðum söfnuðinum að gefa skuldina til þess að hann tæki við henni, en það tilboð var ekki þegið, enda er eins og söfnuðinum sé sama um hvort hann hefir nokkra kirkju eða enga. Hér get ég ekki ráðfært mig við nokk- urn lögfróðan mann um það, hvað tiltæki- legt væri að gera í þessu efni, en ákaflega vænt þætti mér um staðgóðar bendingar í þessu efni. — Það vakti allmikla eftirtekt að í sumar lét einn félagi okkar prestinn sinn vita, að hann óskaði ekki eftir að prest- ur skírði bam hans, en kvaðst kalla dreng- inn Amór, og mætti prestur bóka þetta ef hann vildi. Þetta var Sigurjón á Sandi, bróð- ir Guðmundar jDess er allmargir þekkja nú orðið. Prestur hans er B[enedikt] á Grenj- aðarst[að] og skrifaði hann þegar biskupi um þetta, en hverju hann hefir svarað veit ég ekki. Annars er sra Bfenedikt] orðinn einn af okkar ófrjálslyndustu prestum, og höfðum við þó um tíma allgóðar vonir um hann. Raunar er hann á kanti við kirkjuna, en það er kák eitt, staðlaust og ráðlaust. Nokkrir hér hafa viljað fá borgaralega hjónavígslu og lýst því bæði fyrir presti og sýslumanni að þeir væru ekki kirkjutrúar- menn, en sýslumaður hefir neitað um vígsl- una, enda er hann mesta rola í þeim efnum Q og auk þess hjátrúarfullur og orþódox. Það er vafalaust rétt, sem Benedikt sagði í bréfinu til Valdimars Ásmundssonar 28. jan. 1891, að manntölin segja ekki söguna alla um trúarviðhorf manna. Þannig eru tveir meðlimir Ófeigs í Skörðum og félaga, þeir Jón í Múla og Jóhannes Þorkelsson á Syðrafjalli, taldir lútherskir í báðum mann- tölunum 1891 og 1901, en voru báðir kirkjuandstæðingar og efasemdamenn í trúmálum.10 Jóhannes ritaði snarpa ádeilu- grein á presta og kirkju, „Kirkjufélagið og þjóðfélagið", í Stefni 12. og 24. jan. og 7. febr. 1895 og var svarað af Matthíasi Jochumssyni í Stefni 7. og 15. febr. s.á. og af séra Áma Jónssyni á Skútustöðum í Stefni 27. mars s.á." Þegar þessi deila var komin af stað skrifaði Benedikt Sigurði í Ystafelli 13. febr. 1895: Þykir þér ekki að Stefnir vera farinn að rumskast? Þó mér alls ekki líki ýmislegt, sem Jóhannes segir, þá þykir mér samt vænt um að loks er nú útlit fyrir að diskussion byrji fyrir alvöru, og var það mál komið. Séra Matthías hefir líka tekið svoleiðis í málið að það er ekki til þess að svæfa það. Eg hefði búist við meiri stillingu af honum í þessu máli. Og enginn, sem þekkir séra M[atthías], getur tekið allt, sem hann segir, sem sannfæringu hans. Nú hlýtur Jóhannes TMM 1991:4 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.