Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 25
Útdráttur
Stefanía Júlíusdóttir er lektor í upplýsingafræði við
Háskóla Íslands. Hún er einnig nýjasti doktor upplýs
ingafræðinnar á Íslandi en hún varði doktorsritgerð sína
í bókasafns og upplýsingafræði við Háskóla Íslands í
júlí 2013. Titill ritgerðar hennar er á íslensku „Að hafa
hlutverki að gegna“ : þróun starfa og vinnuumhverfis á
bóka og skjalasöfnum á Íslandi. Hún á að baki langan
og áhugaverðan feril en er þó enn á fullu. Stefanía
fæddist árið 1944. Hún lauk námi í bókasafnsfræði og
líffræði við Háskóla Íslands árið 1974 og MA í bóka
safnsfræði árið 1984. Hún hefur meðal annars unnið á
Landsbókasafni Íslands og Bókasafni Landspítalans. Ég
mælti mér mót við Stefaníu á skrifstofu hennar við Há
skóla Íslands til að ræða um doktorsverkefnið hennar,
starfsferilinn og fleira.
Byrjaði á námi í arkitektúr
Ég fékk styrk til að fara í arkitektúrnám til Rúmeníu.
Þrír styrkir voru boðnir árið áður og einn var laus. Ég
sótti um hann og fór og var þar í eitt ár. Þar kynntist ég
fyrri eiginmanni mínum, sem einnig var þar í námi. Ég
hætti í náminu því að við giftumst og ég fluttist til Banda
ríkjanna með honum, en hann er Bandaríkjamaður. Arki
tektúr er tómstundagaman mitt, mér finnst skemmtilegt
að skoða byggingar og hvernig rými nýtist.
Áhugi á bókasafnsfræði
Eiginmaðurinn minn var í doktorsnámi við Harvard
háskóla þegar við giftumst. Helsta bókasafnið þar er
Widener Library. Geymslur safnsins eru ekki að
gengilegar safngestum, en hann hafði þar aðgang að
geymslum og ég fór stundum með honum þangað og
aðstoðaði hann við að finna efni. Þá fannst mér þetta
notalegt umhverfi og spennandi að vinna á svona stað.
Síðar varð hann prófessor við McGillháskóla í Montreal
í Kanada. Þar var opinn aðgangur að safnkosti fyrir
safngesti og þar aðstoðaði ég hann einnig. Þannig
vaknaði áhugi minn á bókasafns og upplýsingafræði.
Grunnur í líffræði og bókasafnsfræði
Ég var að velta fyrir mér hvað væri vænlegast að
taka í sambandi við atvinnumöguleika og ráðfærði mig
við Einar Sigurðsson, háskólabókavörð, sem var yfir
náminu. Hann sagði mér að það væri skortur á fólki með
raungreinamenntun til að starfa á bókasöfnum. Þannig
að ég hugsaði málið. Valið stóð á milli jarðfræði og líf
fræði. Mér fannst líffræðin svo miklu meira spennandi af
því að í menntaskóla kenndi Örnólfur Thorlacius okkur
líffræði og hann var alveg sérlega skemmtilegur kennari.
Ég hef haft áhuga á líffræði síðan.
Líffræðinámið hefur nýst mér í starfi. Ég kynntist
seinni eiginmanni mínum í tengslum við líffræðinámið.
Hann varð síðan forstöðumaður fyrsta útibús Hafrann
„Framtíðin er björt ef við höldum rétt á spilunum“:
viðtal við Stefaníu Júlíusdóttur
Viðtalið tók Erlendur Már Antonsson, BA í heimspeki og MLIS í bókasafns- og upplýsingafræði.Hann hefur starfað
við upplýsingaþjónustu á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni frá 2011