Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 33

Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 33
Útdráttur Í þessari megindlegu rannsókn kannaði höfundur út­ lánatölfræði nemenda Menntavísindasviðs Háskóla Ís­ lands skólaárið 2012­2013. Skoðað var hve mikið nemendur fengu að láni að meðaltali og hversu hátt hlut­ fall nemenda hafði ekkert fengið að láni á tímabilinu og hvort munur var þar á eftir deildum og námsstigi. Auk þess var kannað hvort tengsl væru milli fjölda útlána og lokaeinkunna nemenda í grunnnámi við útskrift. Af 2.171 nemanda höfðu 1.066 nemar ﴾48%﴿ ekkert fengið lánað á tímabilinu og í ljós kom kom að nemendur í grunnnámi höfðu fengið hlutfallslega meira lánað en nemendur í meistaranámi, en 61% grunnnema höfðu fengið lánað á árinu á móti 43% meistaranema. Nemendur í Íþrótta­ tómstunda­ og þroskaþjálfadeild höfðu hlutfallslega fengið minnst lánað. Marktektarprófið Spearman‘s rho var notað til að kanna hvort fylgni væri á milli fjölda út­ lána og lokaeinkunna sem leiddi í ljós að marktæk já­ kvæð tengsl eru milli útlána og einkunna. Eftir því sem útlánaþrep nemenda er hærra þeim mun líklegra er að hann hafi háa meðaltalseinkunn við útskrift. Þessar nið­ urstöður eru samhljóma niðurstöðum erlendra rann­ sókna. Gegna háskólabókasöfn veigamiklu hlutverki í námi háskólanema? Eða er bara hægt að „googla“ og sleppa því að heimsækja bókasafnið og nýta sér allt það fræðilega efni sem safnið hefur upp á að bjóða? Útlána­ tölur háskólasafna fara lækkandi og vitað er um nem­ endur sem hafa útskrifast með háskólagráðu án þess að hafa fengið lánaða bók á safninu ﴾Dilevko og Gottlieb, 2002, bls. 381﴿. Í þessari tímaritsgrein verður leitast við að svara því hvaða áhrif bókasafnsnotkun hefur á náms­ gengi. Víða erlendis eru háskólabókasöfn í auknum mæli að kanna notkun á þjónustu og efnivið safnsins en einnig er verið að rannsaka áhrif bókasafnsnotkunar ﴾e. library activity data﴿ á námsgengi nemanda ﴾e. student attain- ment﴿ við útskrift. En hvernig er þessu háttað á Menntavísindasviði Háskóla Íslands? Hafa fastagestir safnsins sem nýta sér safnkostinn forskot á aðra nem­ endur? Bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands er sérfræðisafn sem er opið almenningi ﴾18 ára og eldri﴿ en þjónar aðallega nemendum og fræðimönnum sviðsins. Notkun nemenda annarra deilda Háskóla Íslands hefur aukist eftir sameiningu Kennaraháskólans og Háskóla Íslands árið 2008. Áhersla er lögð á að kynna bókasafn­ ið og starfsemi þess fyrir nemendum og kennurum sviðsins og er lesrými safnsins vel nýtt en útlán hafa dregist saman undanfarin ár eins og þróunin virðist vera á öðrum háskólabókasöfnum. Útlán nemenda við Há­ skóla Íslands ﴾hér eftir notað HÍ﴿ á Landsbókasafni Ís­ lands − Háskólabókasafni hafa til dæmis dregist saman árlega frá árinu 2009 til 2012 ﴾Ingibjörg Steinunn Sverr­ isdóttir, [2013], bls. 38﴿. Hugsanleg skýring gæti verið sú að nemendur nýti sér meira Landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum­hvar.is ﴾hér eftir notað Landsaðgangur﴿ og rafrænar séráskriftir HÍ og taki því færri bækur að láni á bókasafninu. Notkunartölur á ra­ frænu efni í landsaðgangi benda til þess þar sem sóttum greinum í heildartexta hefur fjölgað jafnt og þétt frá 2003 til 2012 ﴾Birgir Björnsson, 2013, bls. 1﴿. Notkun á ra­ frænu efni í séráskrift bókasafns Menntavísindasviðs hefur einnig aukist milli ára samkvæmt mælingum safnsins. Árið 2011 voru 712 tímaritsgreinar sóttar í Kristína Benedikz lauk BA námi í ensku 1992 og MLIS gráðu í Bókasafns­ og upplýsingafræði við Háskóla Íslands 2005. Hún hefur starfað á bókasafni Menntavísindasviðs frá 2006. Útlán háskólanema og tengsl við námsgengi Kristína Benedikz Ritrýnd grein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.