Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 37
Bókasafnið 38. árg. 2014
37
Skyldi þessi munur vera marktækur?
Spearman‘s rho prófið var marktækt og
reyndist vera jákvæð fylgni milli útlána og
einkunna
rs = .19, p<.001 ﴾N=224﴿. Og má því
segja að eftir því sem útlánaþrepið er
hærra hjá nemanda þeim mun líklegri er
hann til þess að hafa háa meðaltalsein
kunn við útskrift. Þó er rétt að benda á að
þrátt fyrir marktæka fylgni er ekki hægt
staðhæfa um orsakasamband. Einnig er
rétt að hafa í huga að fylgnistuðullinn var
.19 sem telst lág fylgni þar sem fylgni
stuðlar undir .20 lýsa veiku sambandi
﴾Einar Guðmundsson og Árni Kristjánsson, 2005, bls.
312﴿.
Þessi niðurstaða er samhljóma niðurstöðu The
Library Impact Data Project. En eins og fram hefur kom
ið mældist marktæk fylgni milli útlána og lokaeinkunna
þar sem nemar með 1. einkunn höfðu fengið marktækt
meira að láni en nemar með 3. einkunn ﴾Stone og
Ramdsen, 2013, bls. 553–4﴿.
Fylgni milli deilda var skoðuð og var frekar svipuð.
Hæsta fylgnin var hjá Íþrótta, tómstunda og þroska
þjálfadeild ﴾N=83﴿ eða rs=.25, p<.05. Kennaradeildin
var ekki langt undan með rs= .20, p<.05 ﴾N=119﴿.
Fylgnin hjá báðum deildunum var aðeins hærri en sam
anlögð fylgnin og nær upp fyrir mörkin um lága fylgni.
Hjá Uppeldis og menntunarfræðideild reyndist prófið
vera ómarktækt líklega vegna þess að sá hópur var
minnstur ﴾N=22﴿ rs= .11, p>.05. En til að greina meðal
fylgni ﴾r=.3﴿ þarf 85 þátttakendur eða fleiri ﴾Field, 2009,
bls. 58﴿.
Umræður
Marktæk jákvæð tengsl eru milli útlána og lokaein
kunna grunnnema á Menntavísindasviði Háskóla Ís
lands, sem er samhljóma niðurstöðum erlendra
rannsókna. Þrátt fyrir lágan fylgnistuðul eru niðurstöð
urnar áhugaverðar og þrátt fyrir litla dreifingu einkunna
er ekki hægt að horfa framhjá því að meðaltalseinkunn
hækkar eftir því sem útlánum fjölgar.
Það kom á óvart hversu mikill munur er á útlánum
grunnnema og meistaranema og hversu fá útlánin voru
hjá meistaranemum. Hugsanleg skýring gæti verið sú að
meistaranemar noti rafræn gögn í meira mæli en
prentuð. Útlán nema í Íþrótta tómstunda og þroska
Tafla 1 – Útlán grunnnema MVS 2012–13 og grunnnema í Huddersfield 2008–09
Mynd 4 – Útlán útskriftarnema í grunnnámi
Meðaleinkunn
við útskrift
Staðalfrávik
,471 5
,5379
Útlán nemenda
0 útlán
1 -5 útlán
5-1 0 útlán
1 0-1 5 útlán
1 5-20 útlán
20-25 útlán
25-30 útlán
30-35 útlán
35+ útlán
Samtals
Meðaltal
7,876
7,855
7,995
7,961
8,042
8,067
8,050
8,083
8,1 38
7,967
N
45
42
37
28
26
1 5
4
6
21
224
,4672
,5540
,61 98
,411 7
,251 7
,541 9
,551 8
,51 64
Tafla 2 – Meðaleinkunn við útskrift í hverjum útlánaflokki