Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 78
Bókasafnið 38. árg. 2014
78
sjón með Makerspace, kemur þessi hluti til með að taka
undir sig stærra húsnæði þegar fram líða stundir og hef
ur hún farið fyrir hugmyndavinnu á því verkefni. Í hinum
enda hæðarinnar er herbergi sem hefur að geyma fá
dæma góðan flygil. Þar getur fólk bókað tíma, lokað að
sér og leikið tónlist. Þeir sem nýta sér Makerspace bóka
gjarnan flygilinn til listsköpunar. Makerspace rýmið er
einnig notað fyrir ýmis konar námskeið sem tengjast
ekki endilega listsköpun, til dæmis iPad námskeið.
Samfélagsmiðlar
Samfélagsmiðlar eru mikið notaðir á safninu í Köln
til að auglýsa viðburði og aðra starfsemi, þó eru þeir
notaðir á mismunandi hátt. Teymi sér um að setja efni
inn á samfélagsmiðlana sem jafnframt ritstýrir efninu.
Öllu starfsfólki safnsins ﴾um 170 manns﴿ er skipt niður í
teymi og hvert teymi sér um að uppfæra Facebook síð
una eina viku í senn. Þeir senda efnið á ritstjórnina til
yfirlesturs sem að lokum setur það inn á Facebook.
Enginn er þó neyddur til að taka þátt í þessu. Facebook
er notuð til að auglýsa viðburði, birta myndir og frétta
mola um safnið og tengja við bloggfærslur safnsins.
Twitter er meira notað til að fylgjast með því sem
aðrir eru að gera og að tísta því áfram ásamt því að
koma af stað umræðum um ýmis málefni og reynt að
spila inn á húmor og hressileika.
Bloggið er notað sem fréttaveita og pistlasafn á
Netinu. Blaðamaður safnsins sér aðallega um að skrifa
fréttir á bloggsíðuna. Á meðan við höfundar voru í heim
skókn var tekið viðtal við okkur sem birtist bæði á
blogginu og Facebook ásamt mynd. En þess má geta
að ekki er sjálfgefið að fólk gefi leyfi til að birta mynd af
sér opinberlega. Það er krafa bókasafnsins í Köln að
leita verður samþykkis hjá þeim sem taka á myndir af
áður en smellt er af. Þess vegna eru allar myndir sem
teknar voru í ferðinni mannlausar eða af höfundum.
Lestrarhvatning
Boðið er upp á les og söngstundir fyrir börn á öll
um aldri, allt frá þriggja mánaða til sex ára. Þetta
lestrarhvetjandi verkefni er unnið í samstarfi við Stiftung
lesen og er styrkt af Þýska Menntamálaráðuneytinu.
Börnunum er skipt í þrjá aldurshópa: þriggja
mánaða til tveggja ára, þriggja til fjögurra ára og fimm til
sex ára. Öllum börnum er boðið að koma í eina heim
sókn á bókasafnið þar sem er sungið, lesið og leikið við
þau í 4590 mínútur. Í lok heimsóknar fá þau og for
eldrarnir taupoka með bókum fyrir viðkomandi aldur
ásamt upplýsingabæklingum um verkefnið og safnið, sjá
vefsíðuna http://www.lesestart.de/.
Lestrarhvatning fyrir nýbúa
Mülheim er stærsta útibú Kölnarbókasafns, staðsett
í hverfi þar sem hátt hlutfall íbúa eru innflytjendur. Mikið
er að gera í Mülheimsafni alla daga og er öll þjónusta
þar augljóslega vel nýtt.Í bókasafninu í Mülheim er
barnadeild sem hefur að geyma barnabækur á algeng
ustu tungumálum innflytjenda, þar með taldar bækur
sem eru á fleiri en einu tungumáli, til dæmis þýsku og
tyrknesku, þýsku og ensku. Á safninu er einnig svo
kallað mediabox, ferðataska sem er full af alls kyns
fræðsluefni um menningu á ýmiskonar formi, svo sem
geisladiska, mynddiska og bóka sem eru ætluð til að
gera nýbúumaðlögun þeirra aðeins auðveldari. Með
þessum mediaboxum geta innflytjendur útskýrt sinn
menningarheim fyrir Þjóðverjum auk þess að viðhalda
þekkingunni á eigin menningu. Mediaboxin eru fimm
talsins og inniheldur hvert um sig ákveðið þema, svo
sem trúmál, landafræði og menningu svo dæmi séu
tekin. Mediabox eru lánuð út til þeirra grunnskóla sem
hafa hátt hlutfall innflytjenda.
Viðburðir
Á almenningsbókasafninu í Köln eru rúmlega 1.300
viðburðir árlega og sóttu 24.000 manns þá árið 2012.
Meðal þeirra eru: „Stafræn verkstæði” ﴾Digital works
hops﴿ þar sem boðið er upp á kennslu og þjálfun í
grunnatriðum við tölvunotkun, netnotkun, netöryggi, það
sem Google finnur ekki, notkun á Ipad, umsýsla og
meðferð stafrænna mynda og ýmislegt fleira. Þessar
kynningar hafa verið mjög vinsælar hjá Kölnarbúum og
hafa þær fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Vísinda
kynningar þar sem höfundar fræðibóka eru fengnir til að
kynna þær í samtalsformi við þekkta blaðamenn með
áhorfendum í sal eru mjög vinsælir viðburðir.
Á 3. hæð safnsins er skrifstofa rithöfundarins
Heinrich Böll til sýnis eins og hún var þegar hann lést.
Skrifstofan er varin með glervegg að framan til að hindra
að fólk snerti munina. Einn af þeim ókostum sem fylgja
þessari gjöf til safnsins er að hvorki má taka myndir til
að nota í auglýsingar fyrir viðburði né geta gestir tekið
myndir af þessari sýningu. Safnið hefur leyfi til að nota
eina mynd sem aðstandendur Heinrich Böll hafa sam
þykkt.
Bókabíll
Árið 1928 kviknaði sú hugmynd að vera með bóka
bíl í Köln til að auka þjónustu við borgarbúa. Árið 1931
varð þessi hugmynd að veruleika þegar fyrsti bókabíllinn