Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Side 82

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 82
Bókasafnið 38. árg. 2014 82 ana. Hvað yrði um söfnin í heimi breyttra miðla eins og rafbóka? Almenningsbókasöfn væru ekki á útleið og hún sagðist vona að okkur bæri gæfa til að þróa þau og þroska við nýjar aðstæður því full þörf væri á þeim sem félagsstofnanir eða menningarlegar stofnanir ekki síður en upplýsingastofnanir. Hólmkell Hreinsson, forstöðumaður Amts­ bókasafnsins á Akureyri fór aðeins yfir þróun í starfsemi almenningsbókasafna og taldi brýnt að leggja meiri áherslu á þjónustu en safnkost. Það væri tiltölulega nýtt að kenna notendum að nýta sér safnkostinn. Nú á dög­ um væri mikilvægara að mæla þjónustuna í öðru en út­ lánum. Hólmkell sagði 400­500 manns koma daglega í safnið og ekkert lát væri á. Aftur á móti væru útlánatölur að dragast saman því æ fleiri sæktu tímaritsgreinar í ra­ frænar gagnaveitur. Ekki væri nóg að stilla út safnkosti og hafa góðan bókavörð, það þyrfti að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Í lokin sagði Hólmkell frá danska verkefninu Modelprogram for folkebiblioteker1, og sýndi mynd úr bókinni Gör bibliotekene forskel, sem lýsir starfsemi al­ menningsbókasafna og skörun ýmissa höfuðþátta eins og að skapa – upplifa – uppgötva – taka þátt og hvernig rýmið og þekkingin mynda hluta af þessari skörun. Sunna Njálsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Grundarfjarðar lýsti vanda bókasafna úti á landi. Hún sagði Bókasafn Grundarfjarðar vera dæmigert almenn­ ingsbókasafn í litlu sveitarfélagi. Hún tæpti á sögu safnsins og tók fram hversu mikil einangrunin gæti verið þar sem aðeins væri um einn starfsmann að ræða. Í þeirri stöðu hefði bókafulltrúi ríkisins skipt miklu máli og verið líflínan fyrir litlu söfnin úti á landi. Sunna sagðist vænta mikils af bókasafnaráði. Það væri nauðsynlegt að geta leitað til fagráðs til að tryggja samræmi í starf­ seminni sem víðast um landið. Sunna sagði ennfremur að það vantaði ráðgjafa, fyrirmynd og samræmda stefnu fyrir sveitarfélög og starfsfólk bókasafna til að fara eftir. Sveitarfélögin gætu gert ýmislegt til að styðja bókasöfn­ in. Til dæmis væri hægt að koma á samstarfi innan sýsl­ unnar, gagnlegt væri að skipta með sér verkum og jafnvel safnkosti og nota rafrænu byltinguna til að samnýta hann. Bókasöfn í litlu byggðalagi úti á landi væru oft í bakhúsum eða langt frá miðpunkti samfélags­ ins. Starfsemin væri einhæf og lítið pláss gæfist fyrir safngesti. Mörg safnanna sætu uppi með stóran lager af illa nýttum safnkosti og fagvinna eins og grisjun sæti á hakanum vegna fjárskorts og vanþekkingar. Sunna greindi frá því að Bókasafn Grundarfjarðar hefði verið flutt í svokallaða samfélagsmiðstöð í mið­ bænum og þótt húsnæðið hefði minnkað mikið væri staðsetningin mikilvægari. Þessi miðstöð væri eins kon­ ar fræðslu­ og menningarmiðstöð með þjónustu við ferðafólk, aðstöðu fyrir starfsemi klúbba og félaga, ljós­ myndasafn héraðsins og sögusýningar. Í lokin benti hún á að þegar flutt væri í minna húsnæði kæmi í ljós það sem kallað væri „dauður safnkostur“. Það væri tímafrekt að grisja hann svo viðunandi væri. Einnig væri tekist á um það hvort halda ætti sem mest í bókaarfinn heima í héraði eða ekki þar sem hver hillumetri kostaði sitt. Boðsgestur málþingsins var Njörður Sigurjónsson, lektor í Háskólanum á Bifröst, fram­ kvæmdastjóri Bókmenntasjóðs, er jafnframt í samráðs­ nefnd um framtíð íslenskrar bókaútgáfu sem bráðlega mun skila niðurstöðum. Njörður lýsti breyttu skipulagi menningarmála innan sveitarfélaga og leiðandi hlutverki almenningsbókasafna í menningarmálum. Njörður ræddi vandamál tengd breyttu skipulagi menningarmála innan sveitarfélaga, umhugsunarefni varðandi stöðu bókasafna og hvernig bókasafnið legði áherslu á mikil­ vægi sitt sem leiðandi afl í yfirvofandi breytingum. Mikil­ vægi bókasafni væri meðal annars fólgið í aðgengi að upplýsingum og menningu í víðum skilningi, innblæstri, þekkingu og afþreyingu. Þau væru lýðræðislegt „al­ mannarými“, veittu athvarf og frelsi frá öðrum hagsmun­ um, frá áreiti, markaðssetningu og vörumerkjum og væru kjarninn í menningarstarfsemi lítilla samfélaga. Njörður sagðist sakna menningarhugtaksins í nýju lögunum og sagði að í umræðu um menningarstofnanir gleymdist stundum að bókasöfnin væru meðal þeirra fáu staða sem ekki tengdust sölumennsku. Söfnin væru yfirleitt litlar einingar og stæðu ekki alltaf undir kröfum, því sífellt væri að bætast við hlutverk þeirra. Því væri auðvelt að skera niður sem hefði oft mikil áhrif. Svo væri aðstaða auðvitað misjöfn í sveitarfélögunum. Kannski þyrfti ekki lengur söfn þar sem allt væri á Netinu og brátt yrði allt prentað efni á íslensku aðgengilegt þar. Njörður talaði um að rannsóknir í bókasafnageiranum tengdust lítið öðrum greinum. Fagleg þróun virtist meira inn á við þar sem rætt væri um menntun í bókasafns­ og upplýs­ ingafræðum en ekki þróun fagsins. Hann benti á að í niðurskurði færi fólk í vörn. Í kjölfarið kæmi áhersla á lög, verndun starfsheita og stöðlun. Bókasöfnin ættu að 1 http: //modelprogrammer.kulturstyrelsen.dk/

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.