Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 86

Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 86
Bókasafnið 38. árg. 2014 86 fyrst og fremst verið að kenna þeim einn hlut með þessu og það væri að fyrirgefa. Fyrirgefa og sýna síðan auðmýkt og þakklæti. Í því fólst meðal annars sú viska að Jesús væri al ls ekki eins og ryksuga líkt og margir sem tækju ti l hendinni og hreinsuðu upp skítinn en geymdu hann svo inní sér. Nei, hann kysi að líkja Jesús frekar við uppþvottavél sem hreinsaði og losaði sig síðan við óhreinindin. (Jesus is not a vacum cleaner - doesn´t keep the dirt - he is rather like a dishwasher who moves the dirt away). Nelson Mandela hefði haft þetta að leið- arl jósi þegar hann varð forseti eftir 27 ára fangelsisvist og gaf kvölurum sínum um leið upp sakir. Hann hefði þvegið og losað sig við óhreinindin úr sálinni svo hann gæti haldið áfram án þess að nokkuð íþyngdi honum. Það varð almennur hlátur í salnum og blaðamaðurinn ungi smitaðist einnig af andrúmsloftinu og allt í einu var uppgerðar gáfumannasvipurinn horfinn og afslappað unglingsandlit komið í l jós. Í kjölfarið rigndi fleiri spurn- ingum yfir gestinn sem hann svaraði al ltaf af sömu kátínunni og lífsgleðinni uns þar kom að tíminn var út- runninn og Tutu sveif út úr salnum af sama léttleika og hann hafði komið inn og veifaði ti l áhorfenda og brosti . Eftir sátu ríflega þúsund manns með bros eyrna á mil l i og leið öllum eins. Vegna dularful lra töfra hafði þessum manni tekist að laða fram þá óskýranlegu góðvild sem sameinar fólk, góðvild sem maður skynjar að er öllum eiginleg, en sem svo sjaldan finnur sinn rétta farveg. Í þessari óvenjulegu hamingju okkar áhorf- endanna aumkuðum við okkur jafnframt yfir fávísi okkar að vera búin að týna hæfileikanum til að gleðjast yfir öl lu því sem við höfum. Ég minntist þessarar stundar með Desmond Tutu fyr- ir nokkru síðan þegar hann bar á góma í fréttum, og ég ákvað svona uppúr þurru, að gera einn sunnudaginn að „Degi gleðilegrar eftirtektar“. Ég vandaði mig virki lega strax um morguninn þegar ég teygði úr mér og horfði upp í svefnherbergisloftið: hverju gat ég glaðst yfir akkúrat núna? Auðvitað fóru þessar vanabundnu hugsanir af stað um allt það sem þurfti að gera, fara á fætur, taka ti l mat, þrífa, þvo þvott, já og helst mála svefnherbergið. . . En allt í einu gerðist eitthvað. Mér tókst að sveigja af þessari kunnuglegu hugsanabraut og hreyfði hendur og fætur, deplaði auga og uppgötvaði að ég gat það og mundi líka að það var ful lt af fólki sem gat þetta alls ekki eða þá með harmkvælum. Ég leit út um gluggann og sá sólskin í nýútsprungu trénu mínu - þvílík fegurð! Ég stóð á fætur gat gengið og hreyft mig og kenndi hvergi ti l . Því- lík gjöf. Ég þvoði mér og fann þessa mjúku ti lfinningu þegar vatnið lék um hendurnar. Ég skynjaði snertingu og fann ilm af pottablómunum mínum og mat, og hvernig lungun fylltust af hreinu lofti . Seinna um daginn gekk ég í sundlaugina og fann vorvind strjúka mér um andlitið og blása í hárið og kitla mig á hálsinum. Ég synti baksund og sá grábrydduð ský búa ti l síbreyti leg listaverk. Ég sá fólk brosa, konur þurrka börnunum sínum og kjassa þau, og gömul hjón leiðast yfir götu. Í lok dagsins fann ég að mér hafði tekist, al lavega ör- skotsstund af þessum góða degi að ti leinka mér þessa nýju hugsun, að læra að njóta augnabliksins. En ég fann að ströng og erfið þjálfun beið mín. Desmond Tutu hafði vakið mig ti l umhugsunar um óhefðbundna leið ti l að láta sér líða vel með því að minna mig á aðferð Nelson Mandela ti l að gera heiminn betri . Með því að fyrirgefa og losa sig við óhreinindi þjáninganna, sem hvort sem var ti lheyrðu fortíðinni, og horfast í augu við dásemdir augnabliksins án þess að nokkuð íþyngdi honum. Um leið minntist ég nokkurra lína í bréfi hundrað ára gamals frænda míns sem hann skrifaði ti l móður minnar fyrir mörgum árum: „Mundu það svo Ella mín, að við getum engu breytt um það sem liðið er, hið ókomna er óráðið, en augnablikið, hin líðandi stund , eigum við og er á valdi manns“. Hann var gamall kennari, þessi góði frændi minn, og einhvernveginn fyndist mér rétt að í þessari flóknu veröld sem við lifum í um þessar mundir mættum við kenna börnunum sitthvað um einmitt það að njóta, l ifa og þakka. Eða hefur nokkurn tíma verið tekið próf í því að njóta, sýna alúð, umburðarlyndi, heiðarleika, hug- myndaauðgi, vináttu, samkennd, félagshæfni? Með öðr- um orðum próf í því sem öllu máli skiptir í l ífinu? Af hverju þurfum við að vera svona háð „viðurkenndum“ prófum, reglugerðum, tölum og titlum? Nýtum við virki lega alla þessa þekkingu okkar ti l þess að verða betri manneskjur? Notum við hana ekki frekar sem stað- lausa stafi ti l að verða „samkeppnishæf“ og ota okkur fram? Fyrir hvern? Hvað erum við að reyna að sanna? Samfélagsnorm aftan úr órökstuddri forneskju? Kunnum við að njóta með öllum þeim skilningarvitum sem okkur voru gefin? Gáum svolítið að þessu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.