Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Side 27

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 27
Bókasafnið 38. árg. 2014 27 aganna. Einstaklega fjölbeyttur starfsferill Með B.A.­gráðu í bókasafnsfræði og líffræði fór ég með manninum mínum til Húsavíkur þar sem við vorum frá 1974 til ársloka 1977. Þá fluttumst við suður aftur og ég fór að vinna sem forstöðumaður Bókasafns Rann­ sóknastofnunar byggingariðnaðarins, sem var afskap­ lega spennandi starf að því er mér fannst. Þar kom arkitektúrnámið mér að góðum notum. Stofnunin hafði ritaskipti við systurstofnanir á hinum Norðurlöndunum og víðar sem þurfti að skrá og skipuleggja. Einnig var mikið að gera í upplýsingaþjónustu og við að útvega rit vegna yfirstandandi rannsóknarverkefna á stofnuninni, bæði að panta markaðsrit erlendis frá og einnig utan­ markaðsrit, alls kyns skýrslur og greinargerðir, einungis pappírsefni. Á safninu voru einnig myndir, skyggnur og glærur. Þar var notað sérstakt flokkunarkerfi fyrir bygg­ ingariðnað sem þróað hafði verið á Bretlandseyjum og þýtt yfir á íslensku. Kerfið virkaði vel fyrir það efnissvið sem það var gert fyrir. Takmarkanir þess voru að efni sem ekki varðaði byggingariðnaðinn sérstaklega, til dæmis orðabækur, var ekki hægt að flokka eftir því. Haustið 1978 réðist ég til starfa við Landsbókasafn Íslands í þjóðdeildina svokölluðu til þess að vinna að skráningu Íslensku bókaskrárinnar sem kom út sem sjálfstætt rit árin 1974­2001. Á þeim tíma var verið að tölvuvæða Íslensku bókaskrána, fyrsta tölvuunna skráin kom út árið 1980. Hún náði til útgáfu ársins 1979. Fyrir tölvuvæðinguna var svokallað Ómark snið þróað og síð­ ar Ísmark sniðið, sem ég tók þátt í að þróa. Áhersla var lögð á að byggja upp íslenska þekkingu á sviði tölvumála. Í því skyni var meðal annars stefnt að því að þróa íslenskt bókasafnstölvukerfi og kom ég einnig að þeirri vinnu. Um miðjan níunda áratuginn var horfið frá þeirri hugmynd og ákveðið að aðlaga tölvukerfi sem keypt yrði erlendis frá og tók ég ásamt öðrum þátt í skoðun og vali á því. Þá var safnið enn þá í Safnahúsinu við Hverfisgötu ásamt Þjóðskjalasafni Íslands og mjög þröngt um bæði söfnin, en góður starfsandi og gott fólk sem gaman var að vinna með og sem ég hef verið í vinfengi við síðan. Húsið er líka geysilega glæsilegt og allar innréttingar og húsmunir voru sérhannaðar fyrir það. Hér á Íslandi voru og eru lög um skylduskil sem í raun eru prentskilalög, þannig að allt prentverk er skilaskylt, ekki bara markaðsrit eins og í sumum löndum, heldur allt prent­ verk ­ líka utanmarkaðsrit, veggspjöld, bíómiðar, allt sem er prentað. Í því starfi kynntist ég því hvernig útgáfa hér á landi er spegill þjóðfélagsins, sérstaklega þegar litið er til utanmarkaðsrita sem meðal annars eru gefin út af stjórnmálahreyfingum, trúfélögum, stofnunum, fyrirtækj­ um og einstaklingum. Af þeirri útgáfu sést hvað er að gerast í þjóðfélaginu. Í henni sá maður merki um við­ burði og hluti sem maður hefði aldrei gert sér í hugarl­ und að væru til hér. Skömmu eftir að ég kom heim frá meistaranáminu í Bandaríkjunum 1985 réðist ég sem bókafulltrúi ríkisins í menntamálaráðuneytinu. Í því starfi kom ég meðal ann­ ars að málefnum tölvuvæðingar á bókasöfnum og átti sæti í stjórn Gagnabrunns bókasafna. Starf bókafulltrúa var fólgið í að fara með málefni almennings­ og skóla­ bókasafna. Það varð til samkvæmt fyrstu lögum um al­ menningsbókasöfn nr. 42/1955 og náði einnig til skólasafna samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn nr. 50/1976, en var lagt niður með lögum um almenn­ ingsbókasöfn nr. 36/1997, sem ég tel mjög miður. Það skiptir máli fyrir starfsemi bókasafna landsins að hafa sérfræðing sem vinnur að málefnum þeirra innan ráðuneytisins. Þetta eru meðal annars menntastofnanir. Fólk í ráðuneytum hefur ekki endilega skilning á þörfum safnanna. Árið 1987 var þriðja staðan í bókasafnsfræði við Háskóla Íslands auglýst. Þar gegndi ég lektorsstöðu til ársins 1997. Ég kenndi mörg námskeið, meðal annars Skráningu ﴾sem síðar þróaðist í Bókfræðilega skráningu og lýsigögn﴿, Flokkun ﴾síðar Skipulagning þekkingar﴿, Starfsemi og rekstur bókasafna og upplýsingamið­ stöðva, Uppbyggingu safnkosts og varðveislu, Gagnasöfn og upplýsingakerfi, og þróaði námskeiðið Skjalavarsla í námskeiðið Skjalastjórn. Skjalastjórnin hefur orðið greininni geysilega mikilvægur starfs­ vettvangur og Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor hefur þróað skjalastjórnarnámið áfram með miklum ágætum. Hún hefur mikla starfsreynslu sem mér finnst skipta verulegu máli í þessu fagi; að hafa prófað í raunumhverfi hvernig hlutirnir virka. Ég tel það nauðsynlegt. Viðbúið er að offramboð hefði orðið á bókasafnsfræðingum á tí­ unda áratug síðustu aldar ef þeir hefðu ekki átt kost á störfum við skjalastjórn. Um það er ég alveg sannfærð. Vísbendingar þar að lútandi komu fram í niðurstöðum úr könnun sem ég gerði árið 1989 á þjónustueiningum og fjölda starfsmanna á bókasöfnum. Með aðferðinni sem ég notaði var hægt að gera spá um þörf á mannafla fram í tímann og samkvæmt spánni var augljóst að það hlyti að verða offramboð á bókasafnsfræðingum. En svo varð ekki. Þessi könnun mín náði bara til bókasafna, ekki til skjalasafna, og þá fór ég að hugsa: „Hvers vegna

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.